Sumarstörf í Hörgársveit
05.03.2026
Sumarstarf í Hörgársveit – Við leitum að starfsfólki!
Hörgársveit auglýsir eftir tveimur starfsmönnum í orfaslátt og önnur tilfallandi verkefni sumarið 2026.
Helstu verkefni:
• Orfasláttur og gróðursnyrting
• Almenn umhirða og snyrting á svæðum sveitarfélagsins
• Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur:
• 17 ára eða eldri og æskilegt að viðkomandi hafi bílpróf
• Dugnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Jákvætt viðhorf og góð samvinna
• Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
Laun eru greidd samkvæmt SNS og Einingu Iðju
Ráðningartími: Sumarið 2026
Nánari upplýsingar um störfin veitir Jón Þór Brynjarsson, jonni@horgarsveit.is.
Umsóknarfrestur: 22. mars 2026.
Umsóknir berast á kolbrun@horgarsveit.is