Ólöf Sigurðardóttir

Vísnasafn Hörgársveitar

 

Ólöf Sigurðardóttir

frá Hlöðum

fædd árið 1857, dáin 1933

 

Í lyngmónum:

Í lyngmónum kúrir hér lóan mín,

  hún liggur á eggjunum sínum.

- Nú fjölgar þeim, fuglunum mínum. -

  Hve brjóstið er hreint og hver fjöður fín

og fegurð í vaxtarlínum.

  Það fara ekki sögur af fólkinu því,

en fegurð þó eykur það landinu í,

  í litla landinu mínu,

í hrjóstuga, litla landinu þínu og mínu.

 

 

 

Til baka í yfirlit vísnasafnsins