Íþróttamiðstöðin á Þelamörk

Sundlaugin á Þelamörk, Jónasarlaug

Síminn er 460 1780

Kaupa aðgang

Sundlaugin er alltaf 33-35 gráðu heit.
Annar heiti potturinn er 38-40 gráðu heitur og hinn er 40-42 gráðu heitur.
Vaðlaugin er 37-39 gráðu heit.
Lendingarlaug rennibrautar er 36-38 gráðu heit.
Vatnsgufubaðið er 44-46 gráðu heitt.

Reglulegur afgreiðslutími sundlaugarinnar er sem hér segir:
Opnunartímar 2025
 Vetur 24. ágúst - 5. júní    Sumar 6. júní - 23. ágúst  
 Mánudagur - fimmtudagur  16:00 - 22:30  Sunnudagar - fimmtudagar  11:00 - 22:00
 Föstudagur  LOKAÐ  Föstudagar - laugardagar  11:00 - 18:00
 Laugardagur  11:00 - 18:00    
 Sunnudagur  11:00 - 22:30    

 

Óhefðbundnir opnunartímar í sundlauginni, rauðir dagar og aðrir frídagar

Skírdagur: 11:00 - 18:00
Föstudagurinn Langi: 11:00 - 18:00
Páskadagur: 11:00 - 18:00
Annar í páskum: 11:00 - 18.00
Sumardagurinn fyrsti: 11:00 - 18:00
Verkalýðsdagurinn: 11:00 - 18:00
Uppstigningardagurinn: 11:00 - 18:00
Hvítasunnudagurinn: 11:00 - 18:00
Annar í hvítasunnu: 11:00 - 18:00
Lýðveldisdagurinn: Lokað
Sunnudagur um verslunarmannahelgi: 11:00 - 18:00
Frídagur verslunarmanna:
11:00 - 18:00

Birt með fyrirvara um breytingar.

Verðskrá 2025

 Fullorðnir (16 ára og eldri)  Börn (grunnskóla aldur)  Lífeyrisþegar
 Stakt gjald  1.250 kr.  310 kr.  470 kr.
 10 miða kort  7.100 kr.  2.400 kr.  2.400 kr.
 Hálfsárskort  27.000 kr.  13.500 kr.  13.500 kr.
 Árskort  46.300 kr.  22.900 kr.  22.900 kr.

Leiga
 Sundföt / handklæði  950 kr. (hvort um sig)  
 Íþróttasalur  Stakur tími - 12.000 kr.  Langtímaleiga - 8.900 kr.
 Salarleiga fyrir afmæli 2 klst.  25 eða færri gestir - 17.700 kr.  26 eða fleiri gestir - 19.800 kr.
 Fundarsalur  12.500 kr. (2 klst. eða skemur)  15.600 kr. (umfram 2 klst.)

 

Á árinu 2025 eiga íbúar sveitarfélagsins og fastráðnir starfsmenn sveitarfélagsins kost á lýðheilsustyrk í formi árskorts í sund. Hægt er að sækja kortið HÉR

Íþróttahúsið og sundlaugin eru við Þelamerkurskóla. Auk þess að vera íþróttahús og sundlaug fyrir skólann er húsið leigt út til hópa og félagasamtaka til íþróttaiðkunar. Sundlaugin er afar vinsæll áningarstaður ferðamanna auk þess sem heimamenn og nágrannar eru duglegir að nota hana.

Vaktstjóri er Ingólfur Valdimarsson

Öryggisreglur

  • Börn yngri en 10 ára skulu vera í fylgd með syndum einstaklingi 15 ára eða eldri. Miðað er við fæðingarárið. Mest mega vera tvö börn í fylgd hvers, nema um sé að ræða foreldri eða forsjáraðila barna.

  • Börn eru á ábyrgð foreldra/forsjáraðila í sundlauginni og skulu þeir fylgjast vel með börnum sínum.

  • Þvoið ykkur vel án sundfata áður en farið er í laugina. Sundföt skulu vera hrein.

  • Dýfingar eru ekki leyfðar af langhliðum og grynnri enda laugarinnar, né af bökkum barnalaugar.

  • Ósyndir skulu nota viðurkennda armkúta eða sundvesti. Athugið að hringlaga plastkútar eru leikföng en ekki öryggistæki.

  • Öll notkun tóbaks, nikótínpúða, neysla áfengis og annarra vímuefna er bönnuð í mannvirkinu. Fólki undir áhrifum er óheimill aðgangur.

  • Notkun köfunartækja s.s. öndunarpípu og köfunargrímu sem nær yfir öndunarfæri er óheimil nema með sérstöku leyfi. Tæki skal vera vottað.

Umgengnisreglur

  • Notkun myndavéla og síma er stranglega bönnuð í búningsklefum og á laugarsvæði.

  • Sundstaðir bera ekki ábyrgð á skóm eða öðrum eigum sundgesta. Gestum er bent á að nota læsta skápa.

  • Sundlaugagestir skulu fylgja fyrirmælum starfsmanna. Brot á öryggis- eða umgengnisreglum geta leitt til brottrekstrar frá sundstað.

Reglur um börn

  • 1. júní árið sem börn verða 10 ára geta þau farið í sund án fylgdarmanns (að loknum 4. bekk).

  • Börnum yngri en 10 ára er óheimill aðgangur að sundstöðum nema í fylgd með syndum einstaklingi 15 ára eða eldri.

  • Mest mega vera tvö börn í fylgd hvers nema um sé að ræða foreldri/forráðamann (sbr. reglugerð um sund- og baðstaði 1.kafla 14.gr).

  • Börn eru alltaf á ábyrgð foreldra/forráðamann. Ósynd börn skulu vera með armkúta/sundvesti.