Frímann Pálmason

Vísnasafn Hörgársveitar

 

Frímann Pálmason

 

Frímann fæddist í Baldurshaga í Glæsibæjarhreppi 16. febrúar 1904. Hann var bóndi í Garðshorni frá 1927 til 1972 og síðan á Akureyri til dánardags 9. febrúar 1980.

 

 

Frímann sendi ljóðabréf til Kristjáns Stenstrup mágs síns þegar sá síðarnefndi ætlaði að taka við búinu í Garðshorni 1925 og Frímann vildi gerast vinnumaður hjá honum:

(ort við tunglsljós 3. mars 1925)

 

 

Ljóðabréf eitt lítið hér ég læt nú flakka

 

og óska að það þig hitta megi

 

á hríðarlausum sólskinsdegi.

 

 

Þess ég óska, þess ég bið og það ég vona

 

að bréfið hitti þig og þína

 

við þægilega líðan fína.

 

 

Ef vinnumaður vilt þú að ég verði hjá þér

 

allt hið næsta árið langa

 

þá afarkosti set ég stranga.

 

 

Ég upp það set nú alveg fyrir utan kaupið

 

að ég þurfi ekki að prjóna,

 

að öðru leyti vil ég þjóna.

 

 

Svo ég ekki í baki bogni bið ég yður

 

að ég þurfi ekki að moka

 

og ekki troða heyi í poka.

 

 

Ég upp það set en ekki fyrir utan kaupið

 

að ég megi á orgel læra,

 

af því hef ég skemmtun kæra.

 

 

Eina rollu á ég sem er orðin gömul,

 

geld er og með galla á fæti,

 

greyið er mitt eftirlæti.

 

 

Svo hún verði setjandi í salt að hausti,

 

ég óska að megi greyið ganga

 

til gangna hvar sem hana langar.

 

 

Í kvennatúr ég kannski þarf í hverri viku.

 

Má ég ekki á skíði skjótast

 

og skreppa á bæi rétt sem fljótast?

 

 

Taktu ekki hart á því þó heldur seinki

 

ferð minni af fljóða fundi,

 

þú fyrirgefur þó ég dundi.

 

 

Að endingu ég um það bið, því ei skal flíka

 

að ég hafi frá þér frið

 

í fjóra daga að gifta mig.

 

 

Ef finnst þér þetta feykilega fúlir kostir

 

og öfugt gangi allt til baka,

 

eg þá reyni til að slaka.