Auglýsing um framboð til sveitarstjórnarkosninga í Hörgársveit

Kjörstjórn Hörgársveitar auglýsir eftir framboðslistum vegna sveitarstjórnarkosninga sem fram fara laugardaginn 16. maí 2026.
Meðmælasöfnun framboða verður í ár rafræn í fyrsta sinn í mörgum sveitarfélögum, þar á meðal í Hörgársveit. Kerfið opnar fyrir söfnun meðmælenda 3. mars 2026. Stjórnmálasamtök sem hyggjast bjóða fram þurfa að stofna rafræna meðmælasöfnun fyrir framboð sitt. Einnig verður hægt að skila meðmælum á pappír.
Leiðbeiningar má finna á:
https://island.is/stofna-medmaelasoefnun-vegna-frambods-til-sveitarstjornar
 
Helstu atriði:
  • Framboðslisti skal hafa að lágmarki 5 frambjóðendur og að hámarki 10 frambjóðendur.
  • Hver kjósandi getur aðeins mælt með einu framboði.
  • Frambjóðendur geta ekki verið meðmælendur eigin framboðs.
  • Framboðsfrestur rennur út 10. apríl 2026 kl. 12:00.
  • Viðmiðunardagur kjörskrár er 8. apríl 2026 kl. 12:00.
Kjörstjórn tekur við framboðum föstudaginn 10. apríl 2026 kl. 11:00–12:00 á skrifstofu Hörgársveitar í Þelamerkurskóla. Að lokinni móttöku framboða mun kjörstjórn funda með umboðsmönnum framboðslista. Nánari upplýsingar veitir formaður kjörstjórnar.
Kjörfundur í Hörgársveit fer fram í Þelamerkurskóla 16. maí 2026 frá kl. 10:00 til 22:00.
Ef enginn fullgildur framboðslisti berst verður kosning óbundin. Ef aðeins einn fullgildur framboðslisti berst framlengist framboðsfrestur um tvo sólarhringa. Berist ekki nýr listi innan þess tíma verður sá listi sjálfkjörinn.
Fyrirspurnir til kjörstjórnar má senda á netfangið horgarsveit@horgarsveit.is
 
Kjörstjórn Hörgársveitar
Helgi Bjarni Steinsson, formaður
Viðar Þorsteinsson
María Björk Guðmundsdóttir