Atvinna - Heilsuleikskólinn Álfasteinn

Heilsuleikskólinn Álfasteinn óskar eftir að ráða kennara í 100% deildarstjórastöðu á deild fyrir 2 til 3 ára börn frá 4. ágúst nk.

Mikil áhersla er lögð á gleði og vellíðan barna, næringu, hreyfingu, listsköpun og frjálsan leik. Einnig er unnið með jákvæðan aga (Positive Discipline), vináttuverkefni Barnaheilla og er skólinn á Grænni grein.

Við leitum eftir fólki sem hefur gleð.

i og ánægju af að starfa með börnum.
Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á
vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Vinnuumhverfi leikskólans er gott, nýtt húsnæði, góður starfsandi og „Betri vinnutími“ er
tekinn í haust- og vetrarfríi, dymbilviku, milli jóla og nýjárs, auk þess lokar leikskólinn 14:15
á föstudögum.

Starfsfólk Hörgársveitar á kost á lýðheilsustyrk í formi árskortar í Jónasarlaug á Þelamörk.
Starfssvið deildarstjóra: Starfar samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra FL, lögum og
reglugerðum um leikskóla, öðrum lögum er við eiga s.s. aðalnámskrá leikskóla og
menntastefnu Hörgársveitar.

Menntunar- og hæfniskröfur:
• Umsækjendur þurfa að hafa lokið kennaranámi.
• Framhaldsmenntun og reynsla á sviði stjórnunar er kostur.
• Óskað er eftir sjálfstæðum, ábyrgum og jákvæðum einstaklingi.
• Mikilvægt er að viðkomandi sé góður í mannlegum samskiptum, hafi frumkvæði, sé skipulagður og sveigjanlegur í starfi og tilbúin að takast á við skemmtilegt og krefjandi starf.
• Mjög góð færni í íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli.
• Góð tölvukunnátta er nauðsynleg.

Starfssvið deildarstjóra: Starfar samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra í kjarasamningum FL, lögum og reglugerðum um leikskóla, öðrum lögum er við eiga s.s. aðalnámskrá leikskóla og stefnu viðkomandi sveitarfélags.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi KÍ.

Starfið hentar öllum kynjum. Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum og hvetjum við áhugasama að sækja um óháð kyni og uppruna.

Umsóknarfrestur er til og með 16. mars nk. og skal umsóknum skilað, ásamt ferilskrá á netfangið alfasteinn@horgarsveit.is Upplýsingar gefur Hugrún Hermannsdóttir skólastjóri eða Sigríður Þorsteinsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 460-1760, netfang alfasteinn@horgarsveit.is