Fréttasafn

Fundargerð - 05. september 2006

Þriðjudaginn 5. september 2006 kl. 20:00 kom sveitarstjórn Hörgárbyggðar saman til síns 4. fundar í Þelamerkurskóla. Mætt voru: Árni Arnsteinsson, Birna Jóhannesdóttir, Guðný Fjóla Árnmarsdóttir, Helgi Bjarni Steinsson, Jóhanna María Oddsdóttir ásamt Guðmundi Sigvaldasyni sveitarstjóra. Helgi Steinsson setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna. Fundarritari: Birna Jóhannesdóttir.   &n...

Orðsending frá fjallskilanefnd

Fjallskilanefnd Hörgárbyggðar minnir á að í 14. gr. fjallskilasamþykktar fyrir sveitarfélög á svæði héraðsnefndar Eyjafjarðar er eftirfarandi ákvæði:  „Samhliða seinni göngum skulu landeigendur afgirtra heimalanda smala þau lönd og gera full skil á því fé sem þar er.” Ef landeigendur ætla að hreinsa fé út úr girðingum mælir fjallskilanefnd með að það sé gert fyrir 1. göngur....

Úrslit bæjakeppni Framfara

Á laugardaginn fór fram bæjakeppni hrossaræktarfélagsins Framfara á skeiðvellinum við Björg. Keppt var í 7 flokkum. Mótið tókst vel og þátttaka var góð, nema hún hefði mátt vera meiri í bændaflokknum. Styrktaraðilar mótsins voru fjölmargir og eru þeim færðar bestu þakkir fyrir framlag þeirra. Sigurvegarar mótsins urðu: Í pollaflokki Brynjar Logi Magnússon, Akureyri, og Djákni frá Dalvík,...

Hlíðarbær fær andlitslyftingu

Um þessar mundir er verið að mála félagsheimilið Hlíðarbæ að utan og skipta um járn á hluta af þaki þess. Múrviðgerðir og málningarvinnuna annast Pálmi Bjarnason skv. tilboði sem hann gerði í verkið. Síðustu daga hefur Þorsteinn Áskelsson unnið að því að setja nýtt þakjárn á sal hússins. Áður var búið að skipta um járn á öðrum þakflötum hússins....

Fundargerð - 27. ágúst 2006

Sunnudagskvöldið 27. ágúst 2006 kom fjallskilanefnd Hörgárbyggðar saman til fundar á Staðarbakka mættir: Guðmundur Skúlason, Aðalsteinn H Hreinsson og Stefán L Karlsson.        Eftirfarandi bókað á fundinum:   1.      Fundargerð síðasta fundar undirrituð. 2.      Gengið var frá til dreifingar fjallskilaboðum fyrir hver...

Göngur og réttir í Hörgárbyggð 2006

Í Glæsibæjardeild, Syðri-Bægisárdal og neðri hluta Skriðudeildar fram að Barká verða fyrstu göngur laugardaginn 9. sept. Réttað verður í Þórustaðarétt og Þorvaldsdalsrétt síðdegis sama dag auk nokkurra heimarétta. Í fremri hluta Skriðudeildar og Öxnadal verða fyrstu göngur frá miðvikudeginum 13. sept. til sunnudagsins 17. sept. Réttað verður í Staðarbakkarétt föstudaginn 15. sept. kl. 10 f.h. og ...

Í Skjaldarvík verði áfram hjúkrunardeild

Sveitarstjórn Hörgárbyggðar tekur undir þau sjónarmið starfsmanna í Skjaldarvík að þar sé mjög heppilegt að reka heimili fyrir fólk með minnisglöp og skorar á bæjarstjórn Akureyrar að endurskoða þá afstöðu sína að leggja niður heimilið, ekki síst í ljósi þess að biðlistar eftir hjúkrunarrýmum í héraðinu hafa verið að lengjast....

Fundargerð - 21. ágúst 2006

Mánudagskvöldið 21. ágúst 2006 kom fjallskilanefnd Hörgárbyggðar saman til fundar á Staðarbakka mættir: Guðmundur Skúlason, Aðalsteinn H Hreinsson og Stefán L Karlsson. Einnig sat oddviti Helgi Steinsson hluta fundarins.        Eftirfarandi bókað á fundinum:   1.      Skrifað undir fundargerð síðasta fundar.   2.    &n...

Barnmarga boðhlaupssveitin

Í gær fór fram 2. hluti aldursflokkamóts UMSE í frjálsum íþróttum á Akureyrarvelli. Það er haldið samhliða Akureyrarmóti sem Ungmennafélag Akureyrar (UFA) heldur. Í 1. hluta mótsins, sem var 9. ágúst sl., vakti athygli sveit kvenna í 4x100 m boðhlaupi frá Umf. Smáranum í Hörgárbyggð. Konurnur í henni eiga samtals 13 börn og er það sennilega Íslandsmet. Sveitin náði 2. sæti á mótinu á tím...

Fundargerð - 16. ágúst 2006

Miðvikudaginn 16. ágúst 2006 kl. 20:00 kom sveitarstjórn Hörgárbyggðarsaman til síns 3. fundar  í Þelamerkurskóla. Mætt voru: Árni Arnsteinsson, Birna Jóhannesdóttir, Guðný Fjóla Árnmarsdóttir, Helgi Bjarni Steinsson, Jóhanna María Oddsdóttir ásamt Guðmundi Sigvaldasyni sveitarstjóra. Helgi Steinsson setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna, sérstaklega bauð hann nýráðinn sveitarstjóra velk...