Sæludagur í Hörgársveit

Sæludagurinn í Hörgársveit er árleg fjölskylduhátíð þar sem íbúar og gestir koma saman og njóta þess besta sem sveitin hefur upp á að bjóða.
Dagurinn einkennist af samveru, gleði og fjölbreyttri dagskrá fyrir alla aldurshópa – hvort sem það eru leikir, skemmtun, hópreið, ball, markaður eða notaleg stund með nágrönnum og vinum.

Sæludagurinn 2026 verður haldinn laugardaginn 20. júní.

Markmið Sæludagsins er að efla samfélagsandann og skapa góðar minningar í fallegu og afslappuðu umhverfi sveitarinnar.
Sæludagurinn er drifinn áfram af sjálfboðaliðum, þar sem íbúar taka virkan þátt í að móta og skapa viðburðinn.

Hér er hægt að senda inn þína hugmynd af viðburð hér