Göngur og réttir í Hörgárbyggð 2006

Í Glæsibæjardeild, Syðri-Bægisárdal og neðri hluta Skriðudeildar fram að Barká verða fyrstu göngur laugardaginn 9. sept. Réttað verður í Þórustaðarétt og Þorvaldsdalsrétt síðdegis sama dag auk nokkurra heimarétta.

Í fremri hluta Skriðudeildar og Öxnadal verða fyrstu göngur frá miðvikudeginum 13. sept. til sunnudagsins 17. sept.

Réttað verður í Staðarbakkarétt föstudaginn 15. sept. kl. 10 f.h. og Þverárrétt í Öxnadal mánudaginn 18. sept. kl. 10 f.h.

Þessa gangnadaga er líka réttað í fjórum heimaréttum.

Seinni göngur eru yfirleitt viku seinna nema í Glæsibæjardeild og Syðri-Bægisárdal líður hálfur mánuður á milli gangna.