Afþreying

Sundlaugin Þelamörk

Sundlaugin á Þelamörk er notaleg og fjölskylduvæn sundlaug í fallegu umhverfi Hörgársveitar. Þar er góð aðstaða til sundiðkunar og slökunar fyrir alla aldurshópa.

Við sundlaugina eru tveir heitir pottarr þar sem gestir geta notið útsýnis yfir nærliggjandi náttúru, auk þess sem aðstaðan hentar vel fyrir bæði íbúa og gesti sem vilja taka sér hlé og njóta kyrrðarinnar.

Sundlaugin er góður viðkomustaður fyrir ferðalanga sem vilja upplifa íslenska sundlaugamenningu í rólegu og vinalegu umhverfi.

Sími: 460 1780

Hægt er að kaupa aðgang á vefnum hér:
🌐 https://jonasarlaug.is/


 

The Traveling Viking

🌐www.ttv.is

📧 ttv@ttv.isasta@ttv.is

Alhliða ferðaþjónusta, sala dagsferða með leiðsögn og rútuleiga. (síðan 2008).
The Traveling Viking er með mjög stóra dagsferðaþjónustu útfrá Akureyri allt árið um kring, þau eru með 9 hópferðabíla og 7 fasta starfsmenn. Þau skipuleggjum hópferðir með bæði erlenda og innlenda ferðamenn hvert á land sem er, keyra íþrótta, skóla eða félaga hópa allt árið. Yfir vetrartíman er áhersla lögð á þjónustu við beina flugið til Akureyrar, bæði þá þjónusta fyrir einstaklinga í fastar ferðir, sem og hópa. Á sumrin er stór hluti þeirra verkefna annars vegar hópaferðir um allt land, sem og þjónusta við farþega skemmtiferðaskipa sem sækja Akureyri heim.

Facebook TTV


 

Stable Stop

📍 Ytri-Bægisá, 604 Akureyri
📞 660 9882

Upplifðu íslenska náttúru á hestbaki með Stable Stop. Við bjóðum upp á skemmtilegar og fjölbreyttar hestaferðir fyrir bæði byrjendur og vana knapa.

Veldu á milli stuttra ferða í fallegu umhverfi eða lengri ævintýra þar sem þú kynnist íslenska hestinum á einstakan hátt. Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu, öryggi og eftirminnilega upplifun.


 

AK Hestaferðir

📍 Gásir, 604 Akureyri
📞 897 5756
🌐 www.akureyriridingtours.is
📧 esteranna@internet.is
Býður uppá styttri reiðtúra fyrir hópa og einstaklinga um nágrenni Gása.
Í boði eru eins tíma ferðir sem henta öllum aldurshópum. Reynt er að verða við öllum séróskum varðandi þjónustu þannig að endilega hafið samband ef það er eitthvað sérstakt sem óskað er.
 
Hestaleigan býður uppá á gott úrval af hestum sem bæði henta óvönum og vönum knöpum, öryggisvesti/bakvesti eru til staðar sé þess óskað og hjálmar eru staðalbúnaður í ferðum okkar.

 

Síðan er í vinnslu.

„Rekur þú ferðaþjónustu í sveitarfélaginu? Þá máttu endilega senda okkur upplýsingar og mynd á kolbrun@horgarsveit.is svo við getum sett þig inn.“