Samið um fyrstu lóðina á nýju þjónustusvæði
15.02.2007
Í dag skrifuðu Vélaver hf. og Hörgárbyggð undir samning um lóð Vélavers á 1 hektara lóð undir þjónustumiðstöð fyrir Norðurland. Lóðin er á nýju byggingarsvæði við vegamót hringvegar og Blómsturvallavegar í Hörgárbyggð. Nýja byggingarsvæðið er í þjóðbraut og aðkoma stórra bíla og tækja verður einstaklega góð. Staðurinn er áberandi og reiknað er með að hann verði eftirsótt athafnasvæði.  ...