Fréttasafn

Íbúafundur um aðalskipulag

Frumdrög að aðalskipulagi Hörgársveitar 2012-2024 hafa verið í vinnslu undanfarnar vikur. Þau verða kynnt  á íbúafundi 2. maí nk. kl. 20:00 í Hlíðarbæ, jafnframt því að leitað verður eftir sjónarmiðum íbúa í því sambandi. Í kjölfar þessa íbúafundar verða gerð formleg drög að aðalskipulagstillögunni, sem verða svo kynnt á íbúafundi í haust. Að íbúafundinum loknum, og eftir afgreiðslu skipulags...

Fundur um búfjársamþykkt

Fimmtudaginn 26. apríl nk. verður fundur um drög að búfjársamþykkt fyrir Hörgársveit. Skv. drögunum er gert ráð fyrir að hross og nautgripir þurfi að vera í vörslu frá áramótum og til 1. júlí ár hvert og leyfi þurfi fyrir búfjárhaldi í þéttbýli. Undanfarin ár hefur verið litið svo á að lausaganga sauðfjár og annars búfjár í Arnarneshreppshluta sveitarfélagsins hafi verið bönnuð. Í drögunum er...

Samstarfshópur um skipulagsmál

Settur hefur verið á fót samstarfshópur um skipulagsmál á sveitarfélagamörkum Hörgársveitar og Akureyrar. Helstu viðfangsefni hans verða umfjöllun á þeim þáttum í aðalskipulagstillögum sveitarfélaganna sem varða bæði sveitarfélögin, þ.m.t. útfærsla á legu gatna á sveitarfélagamörkunum, og aðrir þættir skipulagsmála, eftir því sem þurfa þykir. Í hópnum eiga sæti Hanna Rósa Sveinsdótt...

Fundargerð - 18. apríl 2012

Miðvikudaginn 18. apríl 2012 kl. 20:00 kom sveitarstjórn Hörgársveitar saman til fundar í skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.   Fundarmenn: Axel Grettisson, Hanna Rósa Sveinsdóttir, Helgi Þór Helgason, Helgi Bjarni Steinsson, Sunna Hlín Jóhannesdóttir. Fundarritari: Guðmundur Sigvaldason.   Þetta gerðist:   1. Ársreikningur sveitarsjóðs fyrir árið 2011, síðari umræða...

Lokaskýrsla um jarðhitarannsóknir

Lokið er borun hitastigulshola í Hörgárdal og Öxnadal, sem fram fór í vetur. Boraðar voru 16 holur sem allar voru hitamældar tvisvar sinnum og þannig metinn hitastigull þeirra.  Þá liggja fyrir gögn úr eldri borholum á svæðinu. Hitastigullinn mældist 47-105°C eftir því hvar á svæðinu borað var, sem þýðir að engar vísbendingar eru um jarðhitasvæði í nágrenni við þá staði sem borað var á. Lokas...

Fundargerð - 13. apríl 2012

Föstudaginn 13. apríl 2012 kl. 12:00 kom menningar- og tómstundanefnd Hörgársveitar saman til fundar í veitingarsalnum á Engimýri.   Fundarmenn voru: Árni Arnsteinsson, Bernharð Arnarson, Hanna Rósa Sveinsdóttir, Jósavin H. Arason og Solveig Lára Guðmundsdóttir. Auk þess voru á fundinum Skúli Gautason, menningar- og atvinnumálafulltrúi, og Guðmundur Sigvaldason, sveitarstjóri, sem ritaði fund...

Fundargerð - 12. apríl 2012

Fimmtudaginn 12. apríl 2012 kl. 20:00 kom fjallskilanefnd Hörgársveitar saman til fundar á Staðarbakka. Allir nefndarmenn mættir: Aðalsteinn H Hreinsson, Jósavin Gunnarsson, Stefán L Karlsson, Helgi B Steinsson og Guðmundur Skúlason. Einnig sat Guðmundur Sigvaldason sveitarstjóri fundinn.   Eftirfarandi bókað á fundinum:   1. Tímasetning gangna haustið 2012 rædd. Ákveðið var að 1. g...

Fundargerð - 11. apríl 2012

Miðvikudaginn 11. apríl 2012 kl. 20:00 kom skipulags- og umhverfisnefnd Hörgár-sveitar saman til fundar í skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.   Fundarmenn: Hanna Rósa Sveinsdóttir, Anna Dóra Gunnarsdóttir, Birna Jóhannesdóttir, Jón Þór Benediktsson og Róbert Fanndal í skipulags- og umhverfisnefnd og Guðmundur Sigvaldason, sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð.   Þetta gerðist:...

Endurbætur á Jónasarlaug

Hafnar eru endurbætur á Jónasarlaug á Þelamörk og því verður hún lokuð til 16. maí nk.  Á árinu 2008 voru gerðar mjög umfangsmiklar endurbætur á sundlauginni, sem tókust í alla stað mjög vel að því undanskildu að fljótlega kom í ljós galli í ákveðnu efni sem notað var til endurbótanna og keypt var erlendis frá. Gallinn olli því að flísar á sundlaugarbakkanum losnuðu. Endurbæturnar fela í sér ...

Gamaldags kvöldvaka á Melum

Í dymbilviku var haldin „gamaldags kvöldvaka“ á Melum og var það hluti af mánaðarlegum uppákomum sem Leikfélag Hörgdæla stendur fyrir og er að gera tilraunir með. Kvöldvakan tókst með eindæmum vel. Þarna var á boðstólum söngur, hljóðfæraleikur, kveðskapur og frásagnir og skemmtu gestir sér vel. Vöfflurnar og kleinurnar runnu ljúflega niður og fór mæting fram úr björtustu vonum. 50-60 manns áttu h...