Mikil umskipti hafa orðið á veðurfari síðast liðna vikur. Eftir einmuna blíðu vikum saman er kominn snjór. Laugardaginn 13. september fór síðasta fönnin úr Húsárskarði í Auðbrekkufjalli, milli Þríhyrnings og Stóra-Dunhaga. Talið er að snjó hafi ekki tekið úr skarðinu síðan 1937. Nokkrum dögum síðar var fjallið alhvítt. Hér fylgir með mynd úr Húsárskarði tekin kl.: 16 í dag og ...
Laugardaginn 6. september áttu sveitarstjórnarmenn þess kost að veiða á neðsta svæðinu í Hörgá. Veðrið var með eindæmum gott og veiði þokkaleg, fallegar bleikjur. Ásgeir fulltrúi á sveitarstjórnarskrifstofunni kom með grill og matreiddi veiðina ofan í mannskapinn. Bleikjan smakkaðist vel. ...
Þelamerkurskóli var settur föstudaginn 22. ágúst. Kennsla hófst í dag mánudaginn 25. ágúst. Nýr skólastjóri er Anna Lilja Sigurðardóttir. Karl Erlendsson lét af störfum í vor eftir 20 ára skólastjórn. Í Þelamerkurskóla eru 98 nemendur. Skoða má heimasíðu Þelamerkurskóla hér á síðunni um skóla, en veffangið er: www.thelask.is ...
1.göngur í Hörgárbyggð haustið 2003 verða sem hér segir: Í Glæsibæjardeild, Syðri-Bægisárdal og neðri hluta Skriðudeildar fram að Sörlatungu laugardaginn 13. september. Í Gloppu og Almenningi í Öxnadal föstudaginn 19. september en önnur svæði þar laugardaginn 20. september og réttað í Þverárrétt sunnudaginn 21. september. Í fremri hluti Skriðudeildar miðvikudagi...
Þann 13. ágúst sást selur fara upp Hörgá við Þelamerkurskóla. Vakti þetta furðu þeirra er sáu. Kunnugir segja að það muni fátítt að selir fari þetta langt upp eftir ánni, en víst er að æti hefur hann fundið þarna. ...