Fyrirhugað er íbúaþing (hreppsfundur) laugardaginn 22. nóvember n.k. í Hlíðarbæ. Þar er áætlað að ræða mikilvæga málaflokka sem sveitarstjórn er að vinna að, s.s. um skipulagsmál og sorpmál. Menningartengd ferðaþjónusta og uppbygging og rannsóknir á merkum stöðum verður einnig á dagskrá auk fleiri mála. Íbúaþingið verður nánar auglýst síðar bæði hér á heimasíðunni og...
Mikil gleði var á árshátíð sem félagasamtök í Hörgárbyggð og Arnarneshreppi héldu um síðustu helgi í félagsheimilinu Hlíðarbæ. Félögin eru; Leikfélag Hörgdæla, Kirkjukór Möðruvallaklaustursprestakalls, Hestamannafélagið Framfari, Ungmennafélagið Smárinn og Ferðafélagið Hörgur. Skemmtiatriðin voru af ýmsum toga. Söngur, línudans og ævisöguútdráttur, þar sem Gylfi bóndi á...
Hin árlega árshátíð "félaganna" verður haldinn í Hlíðarbæ 25. október n.k. Húsið opnar kl. 20:00. Miðapantanir í síma 462-6996 (Aðalsteinn) og 462-2011 (Ásdís). ...
Mikil umskipti hafa orðið á veðurfari síðast liðna vikur. Eftir einmuna blíðu vikum saman er kominn snjór. Laugardaginn 13. september fór síðasta fönnin úr Húsárskarði í Auðbrekkufjalli, milli Þríhyrnings og Stóra-Dunhaga. Talið er að snjó hafi ekki tekið úr skarðinu síðan 1937. Nokkrum dögum síðar var fjallið alhvítt. Hér fylgir með mynd úr Húsárskarði tekin kl.: 16 í dag og ...
Laugardaginn 6. september áttu sveitarstjórnarmenn þess kost að veiða á neðsta svæðinu í Hörgá. Veðrið var með eindæmum gott og veiði þokkaleg, fallegar bleikjur. Ásgeir fulltrúi á sveitarstjórnarskrifstofunni kom með grill og matreiddi veiðina ofan í mannskapinn. Bleikjan smakkaðist vel. ...