Óskað eftir upplýsingum um ferðaþjónustu í Hörgársveit
22.04.2026
Hörgársveit vinnur nú að því að bæta upplýsingar um ferðaþjónustu á heimasíðu sveitarfélagsins með það að markmiði að gera þær aðgengilegri fyrir bæði íbúa og gesti svæðisins.
Af því tilefni er óskað eftir upplýsingum frá öllum þeim sem bjóða upp á ferðaþjónustu í sveitarfélaginu.
Við biðjum áhugasöm að senda inn eftirfarandi upplýsingar:
- Nafn fyrirtækis / aðila
- Stutta lýsingu á starfseminni
- Eina góða mynd sem er lýsandi fyrir starfsemina
- Tengiliðaupplýsingar og vefslóð (ef við á)
Upplýsingar má senda á netfangið kolbrun@horgarsveit.is
Með þátttöku gefst tækifæri til að kynna starfsemi sína á opinberum vettvangi og auka sýnileika gagnvart ferðamönnum sem heimsækja svæðið.
Við hvetjum alla ferðaþjónustuaðila í Hörgársveit til að taka þátt.