Óskað eftir upplýsingum um ferðaþjónustu í Hörgársveit

Hörgársveit vinnur nú að því að bæta upplýsingar um ferðaþjónustu á heimasíðu sveitarfélagsins með það að markmiði að gera þær aðgengilegri fyrir bæði íbúa og gesti svæðisins.

Af því tilefni er óskað eftir upplýsingum frá öllum þeim sem bjóða upp á ferðaþjónustu í sveitarfélaginu.

Við biðjum áhugasöm að senda inn eftirfarandi upplýsingar:

  • Nafn fyrirtækis / aðila
  • Stutta lýsingu á starfseminni
  • Eina góða mynd sem er lýsandi fyrir starfsemina
  • Tengiliðaupplýsingar og vefslóð (ef við á)

Upplýsingar má senda á netfangið kolbrun@horgarsveit.is

Með þátttöku gefst tækifæri til að kynna starfsemi sína á opinberum vettvangi og auka sýnileika gagnvart ferðamönnum sem heimsækja svæðið.

Við hvetjum alla ferðaþjónustuaðila í Hörgársveit til að taka þátt.