Vorhátíð Heilsuleikskólans Álfasteins
22.05.2026
Vorhátíð Heilsuleikskólans Álfasteins var haldin hátíðleg í gær, 21. maí 2026, á einstaklega fallegum degi. Mikil gleði ríkti meðal barna og fullorðinna þar sem sungið var, hoppað í hoppuköstulum og leikið sér saman. Börnin nutu þess einnig að fá andlitsmálningu og prýddu falleg listaverk þeirra veggi leikskólans.
Foreldrafélag leikskólans tók þátt í undirbúningi og framkvæmd hátíðarinnar og þökkum við þeim fyrir þeirra framlag og stuðning við skemmtilega og vel heppnaða hátíð.