Vel heppnuð námstefna Samtaka heilsuleikskóla á Akureyri
Samtök heilsuleikskóla voru stofnuð árið 2005 með það að markmiði að stuðla að heilsueflingu í leikskólasamfélaginu, gæta hagsmuna heilsuleikskóla, efla samheldni þeirra og skapa vettvang til fræðslu og skoðanaskipta. Leikskólarnir starfa samkvæmt Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur, sem þróuð hefur verið innan íslensks leikskólakerfis frá árinu 1995. Einkenni stefnunnar eru áhersla á næringu, hreyfingu og sköpun í leik og starfi, með það að leiðarljósi að efla líkamlega, andlega og félagslega vellíðan barna og stuðla að jákvæðu viðhorfi til heilbrigðs lífsstíls til framtíðar.
Í dag starfa alls 22 leikskólar samkvæmt Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur, þar af 18 heilsuleikskólar og fjórir leikskólar á heilsubraut sem vinna að innleiðingu stefnunnar. Fjölgun leikskóla á heilsubraut á síðustu misserum endurspeglar þann áhuga og þann sterka faglega grundvöll sem hefur byggst upp í kringum heilsustefnuna í gegnum árin.
Um 150 þátttakendur alls staðar af landinu sóttu námstefnu Samtaka heilsuleikskóla á Akureyri á dögunum. Námstefnan var haldin á Múlabergi í tilefni af því að 30 ár eru liðin frá því fyrsti heilsuleikskóli landsins, Urðarhóll í Kópavogi, var vígður. Meðal þátttakenda var allt starfsfólk Álfasteins í Hörgársveit.
Námstefnan hófst með ávarpi Sigrúnar Huldu Jónsdóttur, fyrrverandi formanns Samtaka heilsuleikskóla og fyrrverandi leikskólastjóra Heilsuleikskólans Urðarhóls. Í erindi sínu sagði hún frá upphafi heilsuleikskólanna og þeirri vegferð sem hefur mótað starf þeirra og þróun í gegnum árin.
Fjölbreytt og fræðandi dagskrá var í boði yfir daginn. Ásta Katrín Helgadóttir, íþróttakennari við Heilsuleikskólann Skógarás og meðhöfundur YAP-Leikskólafimi, fjallaði um mikilvægi hreyfiþjálfunar fyrir hreyfi- og taugaþroska barna í erindi sínu „Kveikjum á taugakerfinu“.
Dögg Stefánsdóttir, sálfræðimenntaður lífsþjálfi, flutti erindið „Máttur viðhorfa - áhrif hugsana á starfsánægju og sjálfsábyrgð“, þar sem hún lagði áherslu á hvernig viðhorf, hugsanir og sjálfsábyrgð geta haft áhrif á líðan, samskipti og starfsánægju.
Laufey Hrólfsdóttir, doktor í næringarfræði, deildarstjóri mennta- og vísindadeildar við Sjúkrahúsið á Akureyri og lektor við Háskólann á Akureyri, fjallaði um næringu barna og mikilvægi þess að byggja upp heilbrigðar venjur frá unga aldri í erindi sínu „Næring barna – heilbrigðar venjur til framtíðar“.
Eitt af lykilatriðum dagsins var kynning á nýrri útgáfu af rafrænni Heilsubók barnsins, sem Þóra Sigrún Hjaltadóttir formaður og Svanhildur Dóra Björgvinsdóttir varaformaður Samtaka heilsuleikskóla kynntu. Markmið verkefnisins er að þróa örugga og notendavæna lausn sem styður við heilsueflingu barna og auðveldar samskipti og upplýsingamiðlun milli heimila og leikskóla.
Til að ljúka deginum með léttum og skemmtilegum hætti flutti Vilhjálmur B. Bragason, betur þekktur sem Villi vandræðaskáld og bæjarlistamaður Akureyrar 2026, erindið „Húmor í starfinu“, þar sem hann minnti á mikilvægi gleði, samveru og húmors í daglegu starfi.
Rauði þráður dagsins var sá að heilbrigðar venjur verða til í litlu skrefunum sem tekin eru á hverjum degi. Fyrirlestrar dagsins minntu á mikilvægi hreyfingar, næringar, jákvæðra viðhorfa, góðra samskipta og þess að vera góð fyrirmynd í starfi með börnum. Jafnframt var undirstrikað að starfsfólk leikskóla hefur einstakt tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á heilsu, líðan og framtíðarvenjur barna með þeim fyrirmyndum sem það sýnir í daglegu starfi.
Námstefnan var skipulögð af Hugrúnu Hermannsdóttir skólastjóra og Sigríði Þorsteinsdóttir aðstoðarskólastjóra í heilsuleikskólanum Álfasteini, Jórunni Jóhannesdóttir skólastjóra heilsuleikskólans Krógabóls ásamt stjórn samtaka heilsuleikskóla. Í stjórn samtakanna sitja meðal annars Sigríður Þorsteinsdóttir og Hugrún Hermannsdóttir.
Stjórn Samtaka heilsuleikskóla þakkar öllum fyrirlesurum og þátttakendum fyrir einstaklega vel heppnaðan dag. Með því að hittast, miðla þekkingu og læra hvert af öðru styrkjum við bæði fagið og starf heilsuleikskólanna um land allt.
Námstefnan á Akureyri staðfesti enn á ný þann kraft sem býr í samfélagi heilsuleikskólanna og mikilvægi þess að standa vörð um Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur til hagsbóta fyrir börn, fjölskyldur og samfélagið allt.