Þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst

Kjörfundur

Kjörstaður í Hörgársveit verður í Þelamerkurskóla gengið er inn um aðal inngang.

Á kjörstað gerir kjósandi grein fyrir sér með framvísun skilríkja með mynd eða á annan fullnægjandi hátt. Hægt er að sýna stafræn ökuskírteini sem eru aðgengileg Ísland.is appinu https://island.is/okuskirteini

Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 21:00.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar við embætti Sýslumannsins á Norðurlandi eystra fer fram sem hér segir:
Strandgata 1 (Landsbankahúsið við Ráðhústorgið á Akureyri) - Virka daga: kl. 10-15

Kjörskrá

Kjörskrá Hörgársveitar er aðgengileg á skrifstofu sveitarfélagsins, einnig geta kjósendur kannað hvort og hvar þeir eru á kjörskrá inni á kosning.is

Kjörstjórn Hörgársveitar