Sveitarstjórn samþykkti aðalskipulagstillögu

Endurskoðun Aðalskipulags Hörgársveitar 2024-2044

auglýsing á niðurstöðu sveitarstjórnar

Sveitarstjórn Hörgársveitar samþykkti á fundi sínum 12.05.2026 tillögu að Aðalskipulagi Hörgársveitar 2024-2044 skv. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Umsagnir og athugasemdir bárust á auglýsingartímabili skipulagstillögunnar og má sjá afgreiðslu sveitarstjórnar í fundargerð á heimasíðu sveitarfélagsins, www.horgarsveit.is

Aðalskipulagið hefur hlotið málsmeðferð í samræmi við 30., 31. og 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Hægt er að skoða frekari gögn í skipulagsgátt: https://skipulagsgatt.is/issues/2023/825

 

F.h. Hörgársveitar,
Skipulags- og byggingarfulltrúi