Sleppidagur sauðfjár og viðhald girðinga

Sleppidagur sauðfjár 5. júní 2026

Í ljósi hagstæðra snjóalaga víða í sveitarfélaginu verður heimilt að sleppa sauðfé á sameiginleg beitarlönd frá og með 5. júní 2026. Landeigendur eru hvattir til að tryggja að fjallsgirðingar og annað nauðsynlegt viðhald sé komið í viðunandi horf fyrir þann tíma.

Upprekstrarheimild

Eigendum og/eða ábúendum jarða er heimilt að nota ógirt heimaland og sameiginleg beitarlönd, sem liggja undir einstaka jörð, til upprekstrar eigin búfjár. Óheimilt er hins vegar að leyfa öðrum afnot af ógirtu heimalandi eða sameiginlegu beitarlandi til upprekstrar nema með samþykki sveitarstjórnar.
Þeir sem hyggjast taka búfé í hagagöngu fyrir aðra eru jafnframt beðnir um að tilkynna það til sveitarfélagsins.
Umsóknir um slík afnot skulu berast sveitarstjórn fyrir 1. júní 2026 á netfangið horgarsveit@horgarsveit.is.

Viðhald girðinga meðfram vegum

Landeigendur eru hvattir til að sinna viðhaldi girðinga meðfram vegum. Greiðslur frá Vegagerðinni vegna viðhalds byggjast á tilkynningum frá landeigendum um að árlegu viðhaldi sé lokið.
Tilkynna þarf um lok viðhalds sem fyrst og eigi síðar en 30. júní 2026 í síma 460-1750 eða á netfangið horgarsveit@horgarsveit.is.