Skólastefna Hörgársveitar
Hörgársveit hefur samþykkt nýja menntastefnu sem markar sameiginlega framtíðarsýn fyrir skóla- og fræðslustarf sveitarfélagsins. Stefnan byggir á skýrum áherslum um velferð, menntun, sköpun og jákvætt skólasamfélag þar sem þarfir barna og ungmenna eru í forgrunni.
Í stefnunni er lögð áhersla á að öllum nemendum líði vel, fái að njóta sín í öruggu og hvetjandi umhverfi og hafi tækifæri til að efla styrkleika sína, hæfileika og áhuga. Þá eru lýðræðislegir starfshættir, samstarf við heimili og nærsamfélag, sjálfbærni og skapandi skólastarf meðal lykilþátta stefnunnar.
Menntastefnan er ætlað að vera leiðarljós fyrir skólastarf í Hörgársveit til framtíðar og styðja við áframhaldandi þróun öflugra skóla þar sem gleði, virðing og metnaður einkenna daglegt starf.
Með nýrri menntastefnu vill Hörgársveit skapa börnum og ungmennum traustan grunn til náms, þátttöku og farsældar í samfélaginu.