Samúðarkveðjur

Hörgársveit vottar aðstandendum þeirra sem létust í hinu hörmulega sjóslysi austur af landinu 25. nóvember 2026 innilega samúð og sendir ástvinum þeirra, skipverjum og öllum þeim sem atburðurinn snertir, hlýjar kveðjur á þessum erfiðu tímum. Jafnframt á allt björgunarfólk og allir aðrir sem komu að björgunaraðgerðum innilegar þakkir skyldar fyrir hetjudáð og ómetanlegt starf við afar erfiðar aðstæður.