Nýjar reglur um heimgreiðslur vegna barna

Nýjar reglur um heimgreiðslur samþykktar

Sveitarstjórn Hörgársveitar hefur samþykkt nýjar reglur um heimgreiðslur til forráðamanna barna.

Samkvæmt nýju reglunum eiga forráðamenn barna á aldrinum 12–18 mánaða sem ekki eru í leikskóla rétt á heimgreiðslum óháð því hvort barn hafi fengið boð um leikskólapláss. Jafnframt er kveðið á um að forráðamenn barna eldri en 18 mánaða geti átt rétt á heimgreiðslum ef ekki er laust leikskólapláss í sveitarfélaginu og barn er á biðlista eftir leikskólagöngu.

Heimgreiðslur nema 220.000 kr. á mánuði fyrir hvert barn og eru greiddar ellefu mánuði á ári. Reglurnar taka gildi 16. júní 2026.

Nánari upplýsingar um skilyrði og umsóknarferli má finna í reglum um heimgreiðslur sem birtar eru hér að neðan.

Reglur um heimgreiðslur barna

Umsóknareyðublað fyrir heimgreiðslur