Líf og fjör í Hörgársveit um helgina

Það verður nóg um að vera í Hörgársveit um helgina!

Það verður líf og fjör í Hörgársveit dagana 14.–16. nóvember. Boðið verður upp á jólamarkaði, handverk, menningu og notalegar samverustundir víðs vegar um sveitarfélagið.

Jólamarkaður Öxnhóls Handverks

14.–15. nóvember kl. 13–17

Jólamarkaður Öxnhóls Handverks verður haldinn um helgina þar sem fjölmargir hönnuðir og handverksfólk kynna og selja verk sín. Þar má meðal annars finna leirvörur, myndverk, garn, útsaumsvörur, vettlinga, barnateppi, jólakerti, jólailmi og kvígukjöt beint frá býli.

Sjá viðburð á Facebook

Jólaopnun í Höllinni Gallerý

14.–15. nóvember kl. 14–17

Höllin Gallerý býður gestum í jólaopnun þar sem finna má fjölbreytt handverk og vörur frá Höllinni, Snældum, Öxnhóls Handverki og LindaBjörk Art. Tilvalið tækifæri til að finna fallegar jólagjafir.

Sjá viðburð á Facebook

Jólastund í Ólafarhúsi á Hlöðum

14.–15. nóvember kl. 14–17

Ólafarhús verður opið gestum þar sem kynnt verður saga hússins og lífshlaup Ólafar Sigurðardóttur skáldkonu. Lesin verða ljóð eftir Ólöfu og haldinn jólamarkaður með handverki og fleiru.

Sjá viðburð á Facebook

Léttmessa í Möðruvallaklausturskirkju

Sunnudagur 15. nóvember kl. 13

Séra Erla Björk þjónar og kór Möðruvallaklausturskirkju syngur undir stjórn Sigrúnar Mögnu Þórsteinsdóttur.

Jónasarljóð í Jónasarlaug á Þelamörk

Mánudagur 16. nóvember kl. 18

Kór Möðruvallaklaustursprestakalls flytur valin lög við ljóð Jónasar Hallgrímssonar. Nemendur Þelamerkurskóla sýna jafnframt myndverk innblásin af ljóðum Jónasar sem munu fljóta í heitu pottunum. Einstök stund þar sem tónlist, ljóð og myndlist mætast í sundlauginni. Aðgangur er ókeypis.

Sjá viðburð á Facebook

Við hvetjum íbúa og gesti til að nýta tækifærið, taka þátt og njóta fjölbreyttrar menningar- og samfélagsdagskrár í Hörgársveit.