Lausar eru til umsóknar fjórar athafnalóðir að Lækjarvöllum
Lækjarvellir 19, 20, 21 og 21a
Lausar eru til umsóknar fjórar iðnaðar- og athafnalóðir að Lækjarvöllum í Hörgársveit. Stefnt er að því að lóðirnar verði tilbúnar til afhendingar síðar á árinu 2025. Gatnagerðargjöld lóðanna eru samkvæmt gjaldskrá Hörgársveitar um gatnagerðargjöld og eru tengigjöld fráveitu innifalin í gjöldunum. Önnur tengigjöld veitna eru ekki innifalin. Um úthlutun lóðanna fer eftir reglum Hörgársveitar um lóðaúthlutanir en þar segir m.a.:
“Við úthlutun lóða, annarra en íbúðarhúsalóða, skulu umsækjendur tilgreina með glöggum hætti byggingaráform sín og framkvæmdahraða. Leggja ber mat á þarfir umsækjanda til lóðar, en verði ekki hægt að greina á milli umsækjenda á þeim forsendum, skal beita reglum þessum eftir því sem við á hverju sinni.”
Skilyrt er að byggt verði hús á lóðunum og skal það vera að lágmarki 50% af heimiluðu byggingarmagni. Þá eru skilyrði um að innan 18 mánaða frá undirritun lóðarleigusamnings verði byggingarframkvæmdir komnar á byggingarstig B2.
Gjaldskrá gatnagerðargjalda og reglur um úthlutun lóða má finna á heimasíðunni horgarsveit.is (eða með því að smella HÉR)
Umsóknir skulu sendar á sveitarstjóra Hörgársveitar á tölvupóstfangið snorri@horgarsveit.is.