Hörgársveit mótmælir breytingum á Loftbrú
Sveitarstjórn Hörgársveitar lýsir yfir miklum áhyggjum af boðuðum breytingum á Loftbrú og leggur áherslu á mikilvægi þess að úrræðið verði áfram öflugt tæki til að jafna búsetuskilyrði landsmanna.
Loftbrú gegnir mikilvægu hlutverki fyrir íbúa landsbyggðarinnar, enda er stór hluti sérhæfðrar heilbrigðisþjónustu, stjórnsýslu og menningarstarfsemi staðsettur á höfuðborgarsvæðinu. Sveitarstjórn telur því mikilvægt að tryggja jafnt aðgengi landsmanna að þessari þjónustu, óháð búsetu.
Sveitarstjórn leggur áherslu á að afsláttur af flugfargjöldum samkvæmt Loftbrú verði áfram að lágmarki 40% og að breytingar á fyrirkomulaginu verði ekki til þess að skerða aðgengi íbúa landsbyggðarinnar að nauðsynlegri þjónustu.
Jafnframt gagnrýnir sveitarstjórn að svo veigamiklar breytingar á mikilvægu byggðaúrræði séu boðaðar án víðtæks samráðs við sveitarfélög og íbúa þeirra svæða sem úrræðið nær til.
Sveitarstjórn Hörgársveitar krefst þess að innviðaráðherra falli frá boðuðum breytingum og tryggi áframhaldandi fjármögnun Loftbrúar.