Heimaslóð Árbók Hörgársveitar

Nú er komin út 22. hefti af Heimaslóð Árbók Hörgársveitar.

Í þessari bók er allskonar fróðleikur frá mismunandi tíma ásamt myndum sem tilheyra efni bókarinnar og einnig ýmsar tækifærismyndir. Áskrifendur hafa fengið bókina senda heim og kostar hún 4.000 kr. Nú eru margir hér í Hörgársveit sem ekki eru áskrifendur og viljum við eindreigið hvetja fólk, bæði hér í sveit svo og annarstaðar á landinu, til þess að kaupa bókina og gerast áskrifendur að henni til framtíðar.

Hægt er að senda tölvupóst til Árna Arnsteinssonar í dynhagi@isl.is , eða Guðmundar Steindórssonar í gudps@simnet.is og kaupa bók og gerast áskrifandi. Þá þarf að fylgja með nafn, heimilisfang og kennitala.

 

Fyrir hönd Sögufélags Hörgársveitar.