Göngur haustið 2026
03.07.2026
Fjallskilanefnd samþykkti að fyrstu göngur haustið 2026 verði víðast hvar frá miðvikudeginum 9. september til sunnudagsins 13. september og að aðrar göngur verði víðast hvar viku síðar. Gengið verði á Þorvaldsdal, Illagilsdal og Auðbrekkufjall laugardaginn 5. september. Frávik frá þessum dagsetningum ef til koma, verða kynnt tímanlega. Akureyrarbæ, Dalvíkurbyggð og Skagafirði verði kynntar þessar tímasetningar.