Göngur haustið 2025

Fjallskilanefnd samþykkti að fyrstu göngur haustið 2025 verði víðast hvar frá miðvikudeginum 10. september til sunnudagsins 14. september og að aðrar göngur verði víðast hvar viku síðar. Gengið verði á Þorvaldsdal, Illagilsdal og Auðbrekkufjall laugardaginn 6. september. Frávik frá þessum dagsetningum ef til koma, verða kynnt tímanlega. Akureyrarbæ, Dalvíkurbyggð og Skagafirði verði kynntar þessar tímasetningar.