Fjölskyldan saman í sumar
26.05.2026
Í sumar vill SAMAN-hópurinn minna á mikilvægi samveru foreldra/forsjáraðila og unglinga sem lykilþátt í forvörnum. Rannsóknir hafa sýnt að samvera fjölskyldunnar er einn helsti skýringarþátturinn fyrir góðu gengi í forvörnum á undanförnum árum.

Markmið SAMAN-hópsins
- Að vinna gegn áhættuhegðun barna og unglinga, styðja við heilbrigðan lífsstíl og koma í veg fyrir að börn og unglingar ánetjist áfengi og öðrum vímuefnum.
- Að efla samtakamátt og samstarf þeirra sem vinna að forvörnum.
- Að vekja athygli á þeirri ógn sem börnum og unglingum stafar af áfengi og vímuefnum í samfélaginu.
- Styðja foreldra í uppeldishlutverkinu, undirstrika ábyrgð þeirra og hvetja til jákvæðra fjölskyldusamskipta.
Þeir sem standa að hópnum eiga það sammerkt að vinna á einhvern hátt með og fyrir börn og unglinga. Tengist sú vinna einkum forvörnum, uppeldi, menntun, meðferð og ráðgjöf.
Gleðilegt sumar,
fulltrúar SAMAN-hópsins.
Heimasíða SAMAN-hópsins, sjá hér.
