Breytingar á sorphirðu

Breytingar á sorphirðu

Af gefnu tilefni er rétt að taka eftirfarandi fram.

Um mitt ár 2023 setti þáverandi Umhverfisráðherra Sjálfstæðisflokksins Guðlaugur Þór Þórðarson, reglugerð um meðhöndlun úrgangs sem skyldaði sveitarfélögin í landinu í þágu hringrásarhagkerfisins til að haga sorphirðu með þeim hætti að í þéttbýli skyldi söfnun heimilisúrgangs innan lóða, þ.e. „við húsvegg“ skiptast í fjóra staka flokka:

  • pappír og pappa, sér
  • plastumbúðir, sér
  • lífrænan úrgang, sér
  • blandaðan heimilisúrgang/ almennt sorp sér

Sveitarfélög geta því einfaldlega ekki ákveðið að hafa ekki heimahirðu á fyrrgreindum efnisflokkum og vísa íbúum þess í stað á almenna grenndargáma eða annað.

Reglurnar krefjast þó ekki endilega fjögurra sjálfstæðra tunna eða þess að þær standi bókstaflega við húsvegg. Svigrúm er til að velja hentugar stærðir og gerðir íláta, til dæmis hólfaskiptar tunnur þar sem úrgangsflokkunum er haldið aðskildum. Það er t.d. gert með því að hafa sér ílát fyrir lífrænan úrgang í tunnu fyrir lament sorp. Svigrúm sveitarfélagsins felst þannig í útfærslu þjónustunnar, en ekki í því að velja hvort skyldunni sé sinnt.

Öll sveitarfélög á Eyjafjarðarsvæðinu hafa ákveðið að fara þá leið að útvega þrjár tunnur við heimili. Það er sömu leið og Hörgársveit er nú að kynna. Þá ákvað Akureyrarbær, samkvæmt upplýsingum þaðan, að hafa almennt þrjár tunnur en möguleiki væri fyrir lítil heimili þar sem búa einn til tveir aðilar að fá tvískiptar tunnur fyrir pappa og pappír annars vegar og plast hinsvegar. Reynslan af þeim hefur hinsvegar ekki verið góð og hefur verið erfitt að tæma þær og skemmast þær hratt þar sem skilrúmið brotnar og klemmur sem halda því týnast. Því er frekar verið að draga úr því að nota þessar tunnur og ekki hefur verið boðið uppá þennan möguleika í öðrum sveitarfélögum á svæðinu.

Í ljósi þessa alls sem fram kemur hér að ofan er Hörgársveit að kynna nú fyrirhugaða breytingu á sorphirðu í Lónsbakkahverfi og Hagabyggð, en þriggja tunnu kerfi hefur verið tekið í notkun annars staðar í sveitarfélaginu.

Íbúum hefur verið gefinn kostur á að koma með óskir um hugmyndir að öðru fyrirkomulagi en því sem kynnt hefur verið og hafa nokkrir húseigendur komið með kurteinslegar athugasemdir sem verið er að skoða. Meðal annars hvort hægt er í einhverjum tilvikum að hafa tvískiptar tunnur eða að aðilar sameinist um tunnur til að draga úr fjölda tunna eða hverjar aðrar þær lausnir sem samræmast þeirri skyldu sveitarfélagsins að haga sorphirðu þannig að hún standist reglugerð þeirri sem því er skylt að starfa eftir.

Með vinsemd
Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri Hörgársveitar