Blöndulína 3
Blöndulína 3 – auglýsing á niðurstöðu sveitarstjórnar
Sveitarstjórn Hörgársveitar samþykkti á fundi sínum 25.02.2026 breytingu á Aðalskipulagi
Hörgársveitar 2012-2024 vegna Blöndulínu 3.
Athugasemdir bárust á auglýsingatímabili skipulagstillögunnar og má sjá afgreiðslu
sveitarstjórnar í fundargerð á heimasíðu sveitarfélagsins, www.horgarsveit.is
Aðalskipulagsbreytingin hefur hlotið málsmeðferð í samræmi við 30., 31., og 32. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010.
Athugasemdir sem bárust á auglýsingatíma gáfu í einstaka tilvikum tilefni til minniháttar
breytinga á skipulaginu. Hægt er að kæra samþykkt sveitarstjórnar til úrskurðarnefndar
umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um
gildistöku skipulags í B-deild Stjórnartíðinda.
F.h. Hörgársveitar,
Skipulags- og byggingarfulltrú