Atvinna - Þelamerkurskóli

Þelamerkurskóli auglýsir eftir matartækni eða matráði í fullt starf í afleysingu um óákveðin tíma
Við Þelamerkurskóla er laus til umsóknar afleysingarstaða matartæknis eða matráðs í mötuneyti
skólans. Matartæknir eða matráður hefur yfirumsjón með eldhúsi skólans sem sér um máltíðir fyrir
nemendur og starfsfólk skólans sem og sveitarskrifstofu. Næsti yfirmaður er skólastjóri.

Í Þelamerkurskóla eru rúmlega 120 nemendur. Skólinn er heilsueflandi skóli og Grænfána skóli.
Jafnframt leggur skólinn áherslu á útinám og fjölbreytileika í skólastarfi, nokkuð sem krefst
sveigjanleika alls starfsfólks.

Helstu verkefni
● Umsjón með mötuneyti skólans í samráði við skólastjórnendur.
● Umsjón með innkaupum og gerð matseðla í samráði við heilsueflingarráð.
● Dagleg matargerð sem tekur mið af viðmiðum embættis landlæknis um heilsueflandi skóla
og þörfum m.t.t. ofnæmis.
● Stuðla að velferð nemenda í góðu samstarfi við starfsfólk skólans.

Menntunar- og hæfniskröfur
● Nám í matartækni og/eða matreiðslu er mikill kostur.
● Menntun og reynsla sem nýtist í starfi.
● Lipurð í samskiptum við börn og fullorðna og sveigjanleiki í starfi.
● Metnaður, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
● Stundvísi og áreiðanleiki er skilyrði.

Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er t.o.m. 21. sept. 2026.
Ferilskrá og umsókn skal senda á netfang skólastjóra ragnheidurlilja@thelamork.is Upplýsingar um Þelamerkurskóla er að finna á heimasíðu skólans, https://www.thelamork.is/ Frekari upplýsingar veitir Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir, skólastjóri, ragnheidurlilja@thelamork.is og í síma 460-1770/866-4085