Áfangastaðaáætlun Norðurlands

Hefur þú hugmynd að áhugaverðum áfangastað í Hörgársveit?

Hörgársveit auglýsir eftir umsóknum um áhugaverða staði og verkefni sem geta orðið hluti af Áfangastaðaáætlun Norðurlands.

Sjá núverandi áætlun hér

Áfangastaðaáætlun Norðurlands er unnin af Markaðsstofu Norðurlands. Markmið áætlunarinnar er að efla ferðaþjónustu á Norðurlandi, skapa skýra sýn á þróun hennar og leggja áherslu á þarfir og væntingar ferðamanna.

Nú gefst einstaklingum, fyrirtækjum, landeigendum og öðrum áhugasömum tækifæri til að koma með tillögur að nýjum eða áhugaverðum áfangastöðum í Hörgársveit sem vert væri að skoða til uppbyggingar og þróunar.

Áfangastaður getur til dæmis verið náttúruperla, sögulegur eða menningarlegur staður, afþreying, upplifun, gönguleið, áhugavert verkefni eða annar staður sem hefur möguleika á að laða að ferðamenn og styrkja ferðaþjónustu í sveitarfélaginu.

Aðeins fimm áfangastaðir frá hverju sveitarfélagi komast inn í Áfangastaðaáætlun Norðurlands, þar sem verkefnum verður síðan forgangsraðað með tilliti til uppbyggingar og þróunar.

Hvernig sæki ég um?

Umsókn þarf að innihalda eftirfarandi upplýsingar:

  • Hvert er verkefnið? – Stutt lýsing á verkefninu eða staðnum.
  • Markmið – Hvert er markmið verkefnisins?
  • Vörður – Hverjir eru helstu verkþættir?
  • Tímamörk – Hver er tímaramminn?
  • Ábyrgð – Hver ber ábyrgð á framkvæmd og hverjir eru stuðningsaðilar?

Umsóknarfrestur er til 17. október 2026.

Umsóknir og frekari upplýsingar berist á kolbrun@horgarsveit.is.

Við hvetjum einstaklinga, fyrirtæki, landeigendur og aðra áhugasama til að nýta tækifærið og koma á framfæri hugmyndum sem geta stuðlað að uppbyggingu ferðaþjónustu og fjölbreyttari upplifun í Hörgársveit.