Aðalskipulag Hörgársveitar 2024-2044

Sveitarstjórn Hörgársveitar samþykkti á 196. fundi sínum þann 27. janúar 2026 að auglýsa tillögu að endurskoðuðu aðalskipulagi Hörgársveitar 2024–2044 í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samhliða er auglýst tillaga að umhverfissmatskýrslu skv. 15. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 111/2021. Tillögurnar eru auglýstar með athugasemdum HMS sbr. 3 mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og fylgja athugasemdirnar gögnum málsins.

Aðalskipulag er skipulagsáætlun fyrir allt sveitarfélagið þar sem sett er fram stefna um landnotkun, byggðaþróun og -mynstur, samgöngu- og þjónustukerfi og atvinnu- og umhverfismál. Aðalskipulaginu er ætlað að vera virkt stjórntæki sem nýtist við ákvarðanatöku og við uppbyggingu og eflingu mannlífs og atvinnulífs í sveitarfélaginu.

Skipulagstillagan og umhverfismatsskýrslan eru aðgengilegar í Skipulagsgátt undir málsnúmeri 825/2023, á heimasíðu Hörgársveitar og á skrifstofu Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9, 605 Akureyri. Fyrirspurnir um málið má senda á sbe@sbe.is.

Ábendingar og athugasemdir skulu vera skriflegar og þurfa að berast í gegnum Skipulagsgátt í síðasta lagi 30. apríl 2026

Geinagerð

Uppdráttur

Forsendur og umhverfismatsskýrsla

Athugasemdir HMS - Aðalskipulag Hörgársveitar

Athugasemdir HMS - Stafræn gögn