Aðalfundur Leikfélags Hörgdæla
05.10.2012
Aðalfundur Leikfélags Hörgdæla var haldinn í gær. Kynntur var spennandi vetur framundan, en á döfinni eru margvíslegar uppákomur á Melum. Miðað er að því að halda viðburði fyrsta föstudag í mánuði, allavega þangað til æfingar verða komnar á fullan skrið. Þannig verður í kvöld haldið trúbadorakvöld, í byrjun nóvember verður bingó og í byrjun desember verður hið sívinsæla bar-svar...