Starf hjá Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar

Skipulags- og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar auglýsir stöðu á skrifstofu embættisins til umsóknar.

Verkefnastjóri byggingarmála

Skipulags- og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar (SBE) auglýsir eftir aðila í 100 % stöðu verkefnastjóra byggingarmála. Starfið felst í leyfisveitingum og lögbundnu byggingareftirlit sveitarfélags eins og það er fyrirskrifað í 8. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010. Starfmaðurinn mun bera ábyrgð á úrvinnslu erinda sem til afgreiðslu koma hjá SBE, svo sem yfirferð uppdrátta, útgáfu byggingarleyfa, samskiptum við umsækjendur og fagaðila, framkvæmd reglulegs byggingareftirlits, framkvæmd öryggis- og lokaúttekta auk annarra verkefna á sviði byggingarmála. Auk þess mun starfsmaðurinn hafa aðkomu að innleiðingu rafrænnar stjórnsýslu og annarra tækninýjunga á sviði byggingareftirlits. Um er að ræða nýja stöðu og leitað er að öflugum og hæfum einstaklingi sem hefur metnað til að vaxa og eflast í starfi og áhuga á að setja mark sitt á viðfangsefni sín. Starfstöð er á skrifstofu SBE, Skólatröð 9 í Hrafnagilshverfi.

Meðal verkefna starfsmannsins verða:
Útgáfa byggingarleyfa og annarra leyfisbréfa vegna leyfisveitinga skv. mannvirkjalögum nr. 160/2010.
Útgáfa lokavottorða og annarra vottorða skv. mannvirkjalögum nr. 160/2010.
Skráning byggingarleyfa í Mannvirkjaskrá HMS.
Yfirferð uppdrátta.
Framkvæmd byggingareftirlits.
Þáttaka í innleiðingu rafrænnar stjórnsýslu á sviði byggingarmála.
Aðstoð við þróun byggingareftirlits og innleiðingu tækninýjunga.
Þáttaka í samstarfsverkefnum milli sveitarfélaga á sviði byggingarmála.
Upplýsingagjöf, leiðbeiningar og aðstoð á sviði byggingarmála við borgara og framkvæmdaraðila og aðra hagsmunaaðila.
Þáttaka í innra eftirliti skv. gæðakerfi embættisins.
Undirbúningur og eftirfylgni afgreiðslufunda skipulags- og byggingarfulltrúa.

Hæfni- og menntunarkröfur
Byggingarfræðingur, -tæknifræðingur, -verkfræðingur eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
Góð íslenskukunnátta bæði í ræðu og riti.
Lipurð í samskiptum.
Skipulagsfærni, nákvæmni og hæfileiki til að vinna sjálfstætt.
Stundvísi og skipulögð vinnubrögð.
Geta og vilji til að tileinka sér nýjungar.
Samvinnuhæfni og jákvæðni í samskiptum.
Reynsla af hönnun er kostur.
Reynsla af vinnu samkvæmt gæðakerfi er kostur.
Reynsla af Mannvirkjaskrá eða sambærilegum gagnagrunnum er kostur.
Þekking á algengum hugbúnaði á borð við MS Office, CAD, BIM og GIS hugbúnaði er kostur.

Byggðasamlagið Skipulags- og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar bs. var stofnað árið 2017 og annast það skipulags- og byggingarmál í Grýtubakkahreppi, Svalbarðsstrandarhreppi, Eyjafjarðarsveit og Hörgársveit skv. skipulagslögum nr. 123/2010 og mannvirkjalögum nr. 160/2012. Starfstöð byggðasamlagsins er í Skólatröð 9, Hrafnagilshverfi og þar vinna fjórir starfsmenn.

Umsóknarbréf og ferilskrá í pdf-sniði skulu send í tölvupósti í síðasta lagi 30. janúar 2026 á netfangið arnar@sbe.is

Nánari upplýsingar veitir Arnar Ólafsson, skipulags- og byggingarfulltrúi, í síma 463-0620.