Sumarstarf í sundlauginni á Þelamörk
05.04.2024
Íþróttamiðstöðin á Þelamörk óskar eftir að ráða sumarstarfsfólk til vinnu frá byrjun júní.
Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.
Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.
Starfsþættir:
- Öryggisvarsla við sundlaug og sundlaugarsvæði.
- Afgreiðsla og önnur þjónusta við gesti.
- Þrif og önnur tilfallandi verkefni.
Hæfniskröfur:
- Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.
- Rík þjónustulund.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Hreint sakavottorð.
Umsækjendur þurfa að ljúka námskeiði í skyndihjálp og standast sundpróf laugarvarða skv. reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum.
Laun eru greidd skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Nánari upplýsingar veitir Ingólfur Ómar, í síma 896 4350 eða í tölvupósti á netfangið sundlaug@horgarsveit.is
Umsóknarfrestur er til og með sunnudeginum 5. maí 2024.
Umsóknum ásamt ferilskrá skal skila á netfangið sundlaug@horgarsveit.is