Lónsbakkahverfi, hringtorg og land Lónsár og Berghóls

Lónsbakkahverfi, hringtorg og land Lónsár og Berghóls – kynning aðal- og deiliskipulagstillögu á vinnslustigi

Aðalskipulags greinargerð:

Aðalskipulagsuppdráttur:

Deiliskipulagsuppdráttur:

Sveitarstjórn Hörgársveitar samþykkti á fundi sínum 8. febrúar 2024 að vísa aðal- og deiliskipulagstillögu fyrir land Lónsár og Berghóls í Lónsbakkahverfi í kynningu skv. 2. mgr. 30 gr. og 4. mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Í skipulagsverkefninu felst að skilgreindar eru íbúðarlóðir fyrir einbýlis- og fjölbýlishús í landi Lónsár þar sem áður var gert ráð fyrir ferðaþjónustulóð. Auk þess er gert ráð fyrir verslunar- og þjónustulóð austast í landi Lónsár. Gert er ráð fyrir að götutenging lóðarinnar Lónsbakka breytist á þann hátt að innkeyrsla verði framvegis yfir lóðina Berghól B og að þar verði einnig grenndarstöð endurvinnslu fyrir Lónsbakkahverfis. Ennfremur er hringtorg á Þjóðveg 1 við gatnamót Lónsvegar fært inn á deiliskipulag.

Skipulagstillögurnar eru aðgengilegar á sveitarskrifstofu Hörgársveitar, Þelamerkurskóla, milli 6. og 20. mars 2024, á heimasíðu Hörgársveitar, www.horgarsveit.is og á vef Skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is undir málsnúmerum 261/2024 (aðalskipulagsbreyting) og 262/2024 (deiliskipulagsbreyting). Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn frestur til 20. mars 2024 til að gera athugasemdir við skipulagstillögurnar. Hægt er að koma athugasemdum á framfæri undir málunum á vef Skipulagsgáttar með innskráningu rafrænna skilríkja. Frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar, Skólatröð 9, 605 Akureyri, eða í tölvupósti á netfangið sbe@sbe.is.

Opinn kynningarfundur vegna skipulagstillaganna verður haldinn í fundarsal íþróttamiðstöðvarinnar á Þelamörk mánudaginn 18. mars nk. kl. 17:00 þar sem fulltrúar sveitarstjórnar munu sitja fyrir svörum varðandi skipulagstillögurnar.

Skipulags- og byggingarfulltrúi