Atvinna - Heilsuleikskólinn Álfasteinn

Heilsuleikskólinn Álfasteinn í Hörgársveit óskar eftir að ráða kennara eða aðila með aðra háskólamenntun sem nýtist í starfi frá 1. júní nk. eða eftir samkomulagi í 100% stöðu.

Leikskólinn er 4ja deilda skóli fyrir börn á aldrinum 1 til 6 ára.

Einkunnarorð skólans eru “Með sól í hjarta”

Mikil áhersla er lögð á gleði og vellíðan barna, næringu, hreyfingu, listsköpun og frjálsan leik. Einnig er unnið með jákvæðan aga (Positive Discipline) og er skólinn á Grænni grein.
Við leitum eftir fólki sem hefur gleði og ánægju af að starfa með börnum.
Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Vinnuumhverfi leikskólans er gott, nýtt húsnæði, góður starfsandi og áunnin stytting vinnuvikunnar er tekin milli jóla og nýjárs og í dymbilviku, auk valkvæðra daga yfir árið. Allt starfsfólk Hörgársveitar fær árskort í Jónasarlaug á Þelamörk.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
  • Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af uppeldis og kennslustörfum æskileg
  • Jákvæðni, félagslyndi og góð færni í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Mjög góð færni í íslensku
  • Hreint sakavottorð

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags leikskólakennara. Starfið hentar öllum kynjum. Við ráðningu eru jafnréttissjónarmið jafngild öðrum málefnalegum sjónarmiðum og hvetjum við áhugasama að sækja um óháð kyni og uppruna. Ef ekki fæst kennari eða aðili með aðra uppeldismenntun verða aðrar umsóknir skoðaðar.
Umsóknarfrestur er til og með 20. mars nk. og skal umsóknum skilað, ásamt ferilskrá á alfasteinn@horgarsveit.is
Upplýsingar gefur Hugrún Hermannsdóttir skólastjóri í síma 460-1760 eða á netfangið alfasteinn@horgarsveit.is