Umsókn í vinnuskóla Hörgársveitar

Til foreldra/forráðamanna barna á vinnuskólaaldri

Vinnuskólinn í sumar mun starfa frá 12. júní - 30. júní og 17. júlí - 4. ágúst. Hann er fyrir börn sem eru nú í 8., 9. og 10. bekk og með lögheimili í Hörgársveit.

Þeir sem óska eftir að sækja vinnuskólann í sumar þurfa að fylla út eyðublaðið hér að neðan í síðasta lagi mánudaginn 15. maí 2023. Óskað er eftir að fram komi í umsókninni ef fyrir liggur að viðkomandi muni ekki sækja vinnuskólann á ákveðnu tímabili. 

Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Hörgársveitar á skrifstofutíma í síma 460 1750 og hjá Jóni Þór Brynjarsyni í síma 860 6846 eða í gegnum tölvupóst á jonni@horgarsveit.is. Skrifstofan er að jafnaði opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10 - 12 og 13 - 15. 

Upplýsingar um umsækjanda

Bankaupplýsingar

Ofnæmi/sjúkdómar

Upplýsingar um forráðamann