Sveitarstjórn fundur nr. 163

07.03.2024 08:45

Fimmtudaginn 7. mars 2024 kl. 08:45 kom sveitarstjórn Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.
Fundarmenn: Axel Grettisson oddviti, Jón Þór Benediktsson, Ásrún Árnadóttir, Sunna María Jónasdóttir og Jónas Þór Jónasson
Fundarritari: Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri

Þetta gerðist:

1. SSNE, kynning á starfsemi og áherslum
Á fundinn mættu Albertína Friðbjörg Elíasdóttir framkvæmdastjóri SSNE og Elva Gunnlaugsdóttir verkefnastjóri og kynntu þær starfsemi SSNE og urðu síðan umræður í framhaldinu. Kolbrún Lind Malmquist verkefnastjóri hjá Hörgársveit sat einnig fundinn undir þessum lið.

2. Fundargerð skipulags- og umhverfisnefndar frá 4.3.2024
Fundargerðin er í 5 liðum og þarfnast 4 liðir afgreiðslu sveitarstjórnar.

a) Í lið 1, Þríhyrningur – umsókn um stofnun lóðarinnar Þríhyrningur IV (2402004)
Lagt fram erindi þar sem eigendur Þríhyrnings L152419 óska eftir að landspilda að 34,1 ha af stærð verði tekin úr landi Þríhyrnings og fái nafnið Þríhyrningur IV. Meðfylgjandi er uppdráttur og skriflegt samþykki allra aðliggjandi landeiganda þar sem þeir staðfesta landamerki.
Sveitarstjórn samþykkti fyrir sitt leyti þau landskipti í Þríhyrningi 1 (L152419), sem lýst er í framlögðum gögnum og uppdrætti og landið fái nafnið Þríhyrningur IV (L-237267).

b) Í lið 2, Blómsturvellir - beiðni um viðbótar efnislosun (2402005)
Lagt var fram erindi frá Akureyrarbæ varðandi efnislosun í landi Blómsturvalla sem er í eigu Akureyrarbæjar. Samþykkt var í október 2023 útgáfa framkvæmdaleyfis fyrir efnislosun fyrir 10.000 m3 í landi Blómsturvalla. Akureyrarbær sækir nú um viðbótarlosun á 20.000 m³ af efni þar. Sveitarstjórn telur nauðsynlegt að leitað verði leiða til nýta mold til frágangs á eldri efnistökusvæðum og uppbyggingar á mönum t.d. við Lækjarvelli.
Sveitarstjórn samþykkti að heimilt verði að gefa út framkvæmdaleyfi fyrir efnislosun á 10.000 m3 að undangenginni grenndarkynningu samkvæmt 43. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Heimilt er að stytta grenndarkynningartímabil ef skriflegt samþykki berst frá öllum hagsmunaaðilum. Erindið telst samþykkt ef ekki berast andmæli.

c) Í lið 3, Hagatún 6, umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi (2309008)
Lagt fram erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra þar sem óskað er umsagnar Hörgársveitar vegna umsóknar Lerkilundar ehf. um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II-C á lóðinni Hagatúni 6.
Sveitarstjórn samþykkti að gera ekki athugasemd fyrir sitt leyti við að leyfið verði veitt.

d) Í lið 5, Glæsibær – breyting á aðalskipulagi vegna verslunar- og þjónustusvæðis (2401002)
Lagt fram erindi frá eigendum jarðarinnar Glæsibæjar þar sem óskað er eftir breytingu á Aðalskipulagi Hörgársveitar á ca. 4 ha svæði í Hálsaskógi þar sem landnotkun yrði breytt úr landbúnaðarlandi yfir í verslunar- og þjónustusvæði.
Sveitarstjórn samþykkti að fresta afgreiðslu erindisins og að fundað verði með bæði Vegagerðinni og málshefjanda til að ræða hugsanlega skörun erindisins við breytingar á Þjóðvegi 1 á svæðinu.

3. Fundargerðir afgreiðslufunda SBE frá 67. og 68. fundi
Fundargerðirnar lagðar fram.

4. Fundargerðir stjórnar Samb. ísl. sveitarfélaga frá 943. og 944. fundi
Fundargerðirnar lagðar fram.

5. Samband ísl. sveitarfélaga erindi v. 80 ára afmælis lýðveldisins 2024
Erindið lagt fram.

6. Þelamerkurskóli endurbygging, verksamningur vegna rafkerfa
Lagður fram samningur við Rafmenn ehf vegna vinnu við rafkerfi við endurbyggingu Þelamerkurskóla í heimavistarálmu.
Sveitarstjórn samþykkti samninginn.

7. Skólaakstur, uppsögn á samningum
Lagt fram bréf frá Akureyri Excursions ehf þar sem samningum vegna skólaakstur á leiðum 1 og 4 er sagt upp. Uppsögnin tekur gildi í lok skólaársins 2023-2024.

8. Trúnaðarmál

 

Fleira gerðist ekki, fundi slitið kl. 11:20