Sveitarstjórn fundur nr. 160

25.01.2024 08:45
 

 

Fimmtudaginn 25. janúar 2024 kl. 08:45 kom sveitarstjórn Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.

Fundarmenn:  Axel Grettisson oddvitiJón Þór Benediktsson, Ásrún Árnadóttir, Sunna María JónasdóttirJónas Þór Jónasson, Jóhanna María Oddsdóttir (vm) og Ásta Júlía Aðalsteinsdóttir (vm).

Fundarritari: Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri

 

Þetta gerðist:

 

Axel Grettisson oddviti og Jónas Þór Jónasson véku af fundi og tóku Jóhanna María Oddsdóttir og Ásta Júlía Aðalsteinsdóttir sæti þeirra á fundinum.  Einnig vék sveitarstjóri af fundi.

Ásrún Árnadóttir varaoddviti tók við stjórn fundarins.

 

1Göngu- og hjólastígur, yfirlýsing landeigenda

Lagðar fram yfirlýsingar 13 landeigenda er varðar samþykki fyrir göngu- og hjólastíg í þeirra landi í tengslum við lagningu Dalvíkurlínu 2. 

Sveitarstjórn samþykkti yfirlýsingarnar fyrir hönd Hörgársveitar.

 

2Fundargerð skipulags- og umhverfisnefndar frá 23.1.2024

Fundargerðin er í 12 liðum og þarfnast 7 liðir afgreiðslu sveitarstjórnar.

 

a) Í lið 2, Dalvíkurlína 2 – aðalskipulagsbreyting (2307002)

Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Hörgársveitar 2012-2024 vegna Dalvíkurlínu 2 ásamt breytingu á legu göngu-, hjóla og reiðleiðar var auglýst frá 20. nóvember 2023 til 1. janúar 2024. 11 erindi bárust á auglýsingatíma skipulagstillögu og voru þau lögð fram til umfjöllunar ásamt tillögum að svörum skipulags- og umhverfisnefndar.

Sveitarstjórn fjallaði um innkomin erindi í þeirri röð sem á eftir fer.

 

2-1. erindi, sendandi HNE

Athugasemd: HNE vekur athygli á því að efnistaka vegna Dalvíkurlínu 2 er háð starfsleyfi heilbrigðisnefndar og leggur áherslu á að efni í framkvæmdina verði tekið úr námum með gilt starfsleyfi.

Afgreiðsla sveitarstjórnarSveitarstjórn samþykkti að viðeigandi ákvæði um starfsleyfisskylda efnistöku verði bætt við aðalskipulagstillöguna.

 

2-2. erindi, sendandi Minjastofnun

Athugasemd: Minjastofnun bendir á að áður en framkvæmdaleyfi er gefið út vegna framkvæmdarinnar þurfi málið að koma til umsagnar stofnunarinnar, og minnir enn fremur á að nýta fyrirliggjandi fornminjaskráningu við hönnun mannvirkisins.

Afgreiðsla sveitarstjórnarSveitarstjórn samþykkti að viðeigandi ákvæði um minjaskráningu og umsögn MÍ vegna leyfisveitngar verði bætt við aðalskipulagstillöguna.

 

2-3. erindi, Hulda Sigurvinsdóttir

Athugasemd: Misræmi er milli uppdráttar og texta auglýstrar skipulagstillögu að því leyti að hjóla- og gönguleið er í texta sögð liggja samhliða nýrri Dalvíkurlínu, sem samkvæmt samkomulagi liggur stígurinn í vegstæði gamla Ólafsfjarðarvegarins. Uppdráttur auglýstrar skipulagstillögu sýnir hinsvegar göngu- og hjólaleið þvert yfir landeign sendanda.

Afgreiðsla sveitarstjórnarSveitarstjórn samþykkti að auglýst skipulagstillaga verði yfirfarin þannig að tryggt verði að samræmi sé milli greinargerðar og uppdráttar.

 

2-4. erindi, sendandi Vegagerðin.

Athugasemd a) Breytingar á stígum og undirgöngum eins og þær eru sýndar á skipulagsuppdrætti miða við óbreytta legu Hringvegar á Moldhaugnahálsi.

Afgreiðsla sveitarstjórnarSveitarstjórn bendir á að stígar og undirgöng þurfi að fylgja Dalvíkurlínu 2 og séu því staðsett eins og raun ber vitni. Nefndin telur því að athugasemdin gefi ekki tilefni til breytinga á auglýstri skipulagstillögu.

Athugasemd b) Í tillögu að breyttu skipulagi eru sýnd ný undirgöng á Ólafsfjarðarveg en hafa þarf samráð við Vegagerðina um staðsetningu og fjölda þeirra.

Sveitarstjórn bendir á að áform um undirgöng hafi verið send Vegagerðinni til umsagnar sbr. erindið sem hér er til umræðu. Sveitarstjórn telur ekki að athugasemdin gefi tilefni til breytinga á auglýstri skipulagstillögu.

Athugasemd c) Í viðræðum Vegagerðarinnar og sveitarfélagsins hefur komið fram að ekki verði lagður göngu- og hjólastígur meðfram Hlíðarvegi en slíkur stígur er sýndur á uppfærðu skipulagi.

Afgreiðsla sveitarstjórnarSveitarstjórn bendir á að göngu- og hjólastígur meðfram Hlíðarvegi sé á núgildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins og að þó ekki séu uppi áform um lagningu stígsins í fyrirsjáanlegri framtíð sé ekki ástæða til að fella hann út af skipulagi við svo búið.

Athugasemd d) Af uppdrætti má ætla að Dalvíkurlína 2 muni liggja í vegi. Geta má í greinargerð að svo sé ekki.

Afgreiðsla sveitarstjórnarSveitarstjórn samþykkti að uppdráttur verði lagfærður þannig að merkingar vega og strengs verði aðgreindar.

 

2-5. erindi, sendandi Norðurorka

Athugasemd: Væntanlegur göngu og hjólastígur liggur nærri og þverar nokkrar vatns- og hitaveitulagnir Norðurorku og bent er á að taka þarf tillit til lagnanna við hönnun stígsins.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að ákvæði um að lega göngu- og hjólastígs skuli taka mið af lögnum í jörðu skuli bætt við auglýsta skipulagstillögu.

 

2-6. erindi, sendandi Fiskistofa

Athugasemd: Fiskistofa bendir á að samkvæmt 33. gr. laga um lax- og silungsveiði eru framkvæmdir í og við veiðivatn, allt að 100 m frá bakka, háðar leyfi Fiskistofu.

Afgreiðsla sveitarstjórnarSveitarstjórn samþykkti að ákvæði um að framkvæmdir innan 100 m frá bakka veiðivatns séu háðar leyfi Fiskistofu skv. 33. gr. laga um lax- og silungsveiði nr. 61/2001 verði bætt við auglýsta skipulagstillögu.

 

2-7. erindi, sendandi Umhverfisstofnun

Athugasemd: Umhverfisstofnun minnir á ákvæði laga um stjórn vatnamála nr. 36/2011 þar að lútandi að opinberar áætlanir á vegum stjórnvalda skuli vera í samræmi við stefnumörkun um vatnsvernd sem fram kemur í vatnaáætlun.

Afgreiðsla sveitarstjórnarSveitarstjórn samþykkti að texta um samræmi skipulagsáætlunar við vatnaáætlun skv. lögum nr. 36/2011 verði bætt við greinargerð aðalskipulags og að í umhverfisskýrslu verði fjallað um áhrif skipulagsbreytingarinnar á ástand vatnshlota sem við sögu koma.

 

2-8. erindi, sendandi Jón Jónsson f.h. Jóns Björgvinssonar.

Athugasemd a) Sendandi finnur að því að ekki hafi farið fram áhættugreining vegna nálægðar raflínu við önnur framkvæmdasvæði né heldur hafi verið lagt fullnægjandi mat á strengleið meðfram Dalvíkurlínu 1 uppi í Hlíðarfjalli.

Afgreiðsla sveitarstjórnar: Sveitarstjórn telur ekki að umtalsverð áhætta gagnvart jarðstrengnum fylgi því að leggja hann í námunda við þjóðveg og aðrar lagnir en þvert á móti geti falist hagræði í því að leitast við að leggja vegi og lagnir saman í „mannvirkjabelti“. Sveitarstjórn telur ennfremur að mat á ólíkum valkostum sem fram fór á undirbúningsstigi framkvæmdarinnar, og gerð er grein fyrir í framkvæmdartilkynningu framkvæmdaraðila til Skipulagsstofnunar dags. 18. júlí 2022, teljist fullnægjandi og að ekki sé tilefni til að stilla upp nánari valkostagreiningu í skipulagstillögunni. Sveitarstjórn telur ekki að athugasemd sendanda gefi tilefni til breytinga á auglýstri skipulagstillögu.

Athugasemd b) Sendandi telur ljóst að lagning Dalvíkurlínu 2 mun þrengja að möguleikum til nýtingar svæðisins sem byggingarlands og jafnframt skapa sérstakt óhagræði og kostnað við nýtingu svæðisins.

Afgreiðsla sveitarstjórnarSveitarstjórn bendir á að uppbygging íbúðarsvæðis sé leyfisskyld framkvæmd og skuli sem slík vera í samræmi við gildandi aðalskipulag sveitarfélagsins. Strengleið Dalvíkurlínu 2 liggur um land sendanda á um 260 m kafla á svæði sem í Aðalskipulagi Hörgársveitar 2012-2024 er skilgreint sem landbúnaðarland. Framkvæmdaáformin sem sem sendandi vísar til samræmast því ekki gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins. Ennfremur bendir sveitarstjórn á að í framkvæmdalýsingu Landsnets til Skipulagsstofnunar dags. 18. júlí 2022 kemur fram strengleið Dalvíkurlínu 2 sé að mestu innan veghelgunarsvæðis þjóðvegar sem er 30 m frá miðlínu vegar á svæðinu sem hér um ræðir. Í sama gagni kemur fram að helgunarsvæði 66 kV jarðstrengs sé alls 7 m breitt. Í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 segir að ný íbúðar- eða frístundahús skuli ekki standa nær stofnvegi en 100 m og önnur hús ekki nær en 50 m, og því má ljóst vera að af slíkri uppbyggingu getur ekki orðið á svæðinu þar sem jarðstrengurinn og helgunarsvæði hans eru fyrirhuguð. Sveitarstjórn telur ekki að athugasemd sendanda gefi tilefni til breytinga á auglýstri skipulagstillögu.

Athugasemd c) Sendandi mótmælir að skilyrði verði til útgáfu framkvæmdaleyfis á grunni svo ónákvæms aðalskipulags.

Afgreiðsla sveitarstjórnarSveitarstjórn bendir á að framkvæmdaleyfisumsókn sé ekki til meðferðar í þessu máli heldur einungis aðalskipulag. Þegar framkvæmdaleyfisumsókn vegna framkvæmdarinnar berst sveitarfélaginu muni hún hljóta málsmeðferð skv. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. Sveitarstjórn telur ekki að athugasemd sendanda gefi tilefni til breytinga á auglýstri skipulagstillögu.

Athugasemd d) Kvaðir sem fylgja lagningu Dalvíkurlínu 2 munu fela í sér að önnur landnot en ræktun á efstu 30 cm yfirborðs verður bönnuð. Það felur m.a. í sér að skógrækt verður ekki heimiluð.

Afgreiðsla sveitarstjórnarSveitarstjórn bendir á að skógrækt er leyfisskyld framkvæmd og skuli sem slík vera í samræmi við gildandi aðalskipulag sveitarfélagsins. Það svæði sem erindi sendanda lýtur að er skilgreint sem landbúnaðarland í Aðalskipulagi Hörgársveitar 2012-2024. Sveitarstjórn telur ekki að athugasemd sendanda gefi tilefni til breytinga á auglýstri skipulagstillögu.

Ekki eru gerðar athugasemdir við auglýsta skipulagstillögu í erindum sem bárust frá Akureyrarbæ, Dalvíkurbyggð og Náttúrufræðistofnun Íslands.

Sveitarstjórn samþykkti að auglýstri skipulagstillögu verði breytt eins og fram kemur í afgreiðslunefndarinnar á athugasemdum 1, 2, 3, 4d, 5, 6 og 7 og að svo breytt skipulagstillaga verði samþykkt skv. 1. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Axel Grettisson oddviti og Jónas Þór Jónasson komu aftur til fundar sem og sveitarstjóri og véku Jóhanna María Oddsdóttir og Ásta Júlía Aðalsteinsdóttir af fundi. Axel Grettisson oddviti tók aftur við stjórn fundarins.

 

b) Í lið 3, Aðalskipulag Hörgársveitar endurskoðun (2305001)

Skipulags- og matslýsing vegna endurskoðunar Aðalskipulags Hörgársveitar 2012-2024 var kynnt á milli 15. nóvember og 13. desember 2023 og bárust 20 erindi á kynningartímabilinu. Sveitarstjórn fjallaði um innkomin erindi.

Sveitarstjórn samþykkti að skipulagshöfundi verði falið að hafa hliðsjón af innsendum erindum við gerð skipulagstillögu.

 

c) Í lið 4, Dysnes, landfylling og höfn – mat á umhverfisáhrifum – umsagnarbeiðni (2311012)

Hafnasamlag Norðurlands bs. áformar uppbyggingu á hafnarsvæði við Dysnes samkvæmt samþykktu deiliskipulagi. Matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum er nú í kynningu og hefur Skipulagsstofnun óskað umsagnar Hörgársveitar um matsáætlunina sem lögð var fram og unnin af Mannvit í nóvember 2023.

Sveitarstjórn samþykkti að gera ekki athugasemd við matsáætlunina á þessu stigi.

 

d) Í lið 7, Lónsbakki þéttbýli – Reynihlíð 20-26 – deiliskipulagsbreyting (2311015)

Fyrir fundinum lágu fjórar breytingartillögur er varða deiliskipulag Lónsbakkahverfis.  Tillögurnar hafa áður hlotið málsmeðferð samkv. 43.grein skipulagslaga, en hafa ekki verið auglýstar í b-deild stjórnartíðinda.

a) Breyttur í íbúðafjöldi í Reynihlíð 15. 
b) Breytt húsagerð í Reynihlíð 21 og 23.
c) Breyttur byggingarreitur Álfasteins
d) Breytt húsagerð Reynihlíð 20-26.

Sveitarstjórn samþykkti deiliskipulagsbreytingarnar samkvæmt 2. málsgr. 43. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

 

e) Í lið 8, breyting á aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 – efnisnáma við Hálsá – umsagnarbeiðni (2312003)

Dalvíkurbyggð óskar eftir umsögn Hörgársveitar um skipulagslýsingu fyrir breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna áforma um efnisnám við Hálsá. Skipulagslýsing frá Teikna frá desember 2023 lögð fram. Umsagnarfrestur var til 29. desember 2023 en hefur verið framlengdur.

Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við skipulagslýsinguna.

 

f) Í lið 9, Gáseyri – umsókn um framkvæmdaleyfi til sandtöku (2401001)

Lögð fram umsókn frá Gáseyrin ehf. um framkvæmdaleyfi til sandtöku við ósa Hörgár á Gásum/Gásaeyri.

Sveitarstjórn hafnar erindinu enda samræmist það ekki gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins.

 

g) Í lið 12, Lónsbakkahverfi – deiliskipulagsbreyting (2312004)

Lögð fram deiliskipulagstillaga er varðar breytingu á Lónsbakkahverfi. Afgreiðslu frestað.

 

3Fundargerð rekstrar- og framkvæmdanefndar frá 19.1.2024

Fundargerðin lögð fram og rædd.

 

4Fundargerð stjórnar Samb. ísl. sveitarfélaga frá 941. fundi

Fundargerðin lögð fram.

 

5Fundargerð SSNE frá 233. fundi

Fundargerðin lögð fram.

 

6Fundargerð stjórnar Norðurorku frá 293. fundi

Fundargerðin lögð fram.

 

7Innviðaráðuneytið, erindi v. Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga

Erindið lagt fram.

 

8Lónsá (L173137), lóðarleigusamningur

Lögð fram drög að lóðarleigusamningi við Lónsbakka ehf kt. 560315-0310. Samningnum fylgir hnitsett lóðarblað.

Sveitarstjórn samþykkti samninginn.

 

Fleira gerðist ekki, fundi slitið kl. 11:40