Skipulags- og umhverfisnefnd fundur nr. 101

26.03.2024 08:45

Þriðjudaginn 26. mars 2024 kl. 08:45 kom skipulags- og umhverfisnefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins.

Fundarmenn: Jón Þór Benediktsson formaður, Agnar Þór Magnússon, Ásrún Árnadóttir, Sunna María Jónasdóttir og Bjarki Brynjólfsson í skipulags- og umhverfisnefnd, Vigfús Björnsson byggingar- og skipulagsfulltrúi og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri.

Fundargerð ritaði Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri.

1. Glæsibær, Hagabyggð – deiliskipulag áfangi III (2301004)
Kynningartímabili vinnslutillögu aðal- og deiliskipulags lauk 28. febrúar 2024 en var framlengt til 13. mars að beiðni Skipulagsstofnunar. Alls bárust 15 erindi vegna kynningarinnar þar sem gerðar eru nokkrar athugasemdir við skipulagsáformin. Skipulags- og umhverfisnefnd fjallaði um innkomin erindi og leggur til við sveitarstjórn að brugðist verði við fram komnum athugasemdum á eftirfarandi hátt.

Aths. 1) Samræmi við svæðisskipulag og landsskipulagsstefnu varðandi nýja þéttbýlisstaði.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulags- og umhverfisnefnd telur ekki tímabært að skilgreina Hagabyggð sem þéttbýli í aðalskipulagsbreytingunni sem hér um ræðir.

Aths. 2) Varðveisla landbúnaðarlands.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulags- og umhverfisnefnd bendir á að ákvæði laga og skipulags um verndun landbúnaðarlands lúta að landi sem skilgreint er sem landbúnaðarland í gildandi aðalskipulagi, og ákvæði t.d. jarðalaga um lausn úr landbúnaðarnotum eiga við þegar sveitarstjórn tekur ákvörðun um að breyta landnotkunarflokki lands úr landbúnaðarsvæði (L) í annan landnotkunarflokk. Svæðið sem hér um ræðir hefur verið skilgreint sem skógræktar- og landgræðsusvæði (SL) frá gildistöku Aðalskipulags Hörgársveitar 2012-2024 og ákvörðun um að breyta flokkun landsins úr landbúnaðarsvæði (L) hefur þvi þegar verið tekin.

Aths. 3) Umferðaröryggi (vegnr. 816).
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulags- og umhverfisnefnd felur sveitarstjóra að koma á fundi með Vegagerðinni og ræða hvort og hvaða ráðstafana æskilegt sé að taka til vegna umferðaröryggis á þjóðvegi 816.

Aths. 4) Útfærsla fráveitu.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulags- og umhverfisnefnd kallar eftir að ítarlegri umfjöllun um fráveitu verði bætt við deiliskipulagið þannig að a.m.k. komi fram hvaða tækni verður notuð og hvernig tryggt verði að ekki hljótist lyktarmengun og mengun af affallsvatni hreinsistöðvar á svæðinu.

Aths. 5) Þrengt að búrekstri – nábýli og landnæði.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulags- og umhverfisnefnd telur ekki að skipulagsáformin sem hér um ræðir þrengi að möguleikum til búrekstar í nágrenninu, enda eru 700-1000 m milli skipulagssvæðisins sem hér um ræðir og næstu bújarðar í rekstri. Auk þess bendir nefndin á að í aðalskipulagi kemur fram fyrirvari varðandi stöðu búrekstrar gagnvart nábýli við íbúðarbyggð.

Aths. 6) Hagkvæm uppbygging sveitarfélagsins.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulags- og umhverfisnefnd telur að með að fjölga íbúum sveitarfélagsins sé stuðlað að fjárhagslegri sjálfbærni þess, auknum fjölbreytileika samfélagsins auk þess sem hún bendir á að í skipulagsáformunum sem hér um ræðir felist búsetukostir sem ekki er hægt að bjóða upp á annarsstaðar.

Aths. 7) Fordæmisgefandi ákvörðun.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að mótuð verði stefna um íbúðarbyggð í dreifbýli sem bætt verði inn í aðalskipulag í yfirstandandi endurskoðun skipulagsins.

Aths. 8) Umhverfisstefna – sjálfbær landnýting, skóglendi opið almenningi, skila landi jafn góðu eða í betra ásigkomulagi til komandi kynslóða.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulags- og umhverfisnefnd telur að í skipulagstillögunni felist margir þættir sem eru jákvæðir með tilliti til stefnu sveitarfélagsins í umhverfismálum, t.a.m. felist mikil gæði í nálægð byggðarinnar við skóg, fjöru og lítt snortna náttúru. Áformin gangi því ekki gegn umhverfisstefnu sveitarfélagsins. Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulagshönnuði verði falið að gera grein fyrir samspili skipulagsáformanna við umhverfisstefnu sveitarfélagsins.

Aths. 9) Eyrarvíkurvegur sem tengivegur.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að Eyrarvíkurvegi verði breytt úr tengivegi í héraðsveg í yfirstandandi aðalskipulagsbreytingu.

Aths. 10) Umhverfismat áætlana.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulags- og umhverfisnefnd bendir á að áhrifamat vegna skipulagsáformanna koma fram í greinargerðum aðal- og deiliskipulags og að bætt verði við matið í samræmi við umfjöllun nefndarinnar um innkomnar athugasemdir, t.d. varðandi útfærslu fráveitu, grenndaráhrif gagnvart búrekstri, og samræmi við umhverfisstefnu Hörgársveitar.

Aths. 11) Hámarks hæð húsa fimm metrar.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulags- og umhverfisnefnd telur ekki að sex metra hámarkshæð bygginga á skipulagssvæðinu muni vera íþyngjandi fyrir ásýnd þess eða grenndaráhrif. Lægri hámarkshæð myndi aftur á móti þrengja verulega möguleika á að hafa millipall/nýtanlegt ris í húsum líkt og skipulagstillagan leggur til.

Aths. 12) Nálægð við frístundasvæði Glæsibær Hagaskógur.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulags- og umhverfisnefnd bendir á að almenningur eigi samkvæmt lögum umferðarrétt um svæðið og að uppbyggingaráform í Hagabyggð breyti engu í þeim efnum. Auk þess bendir nefndin á að skipulagssvæðið liggi ekki upp að landeigninni Glæsibær Hagaskógur (L187134). Nefndin telur því ekki að gengið sé á hlut eigenda frístundabyggðarinnar með þessum skipulagsáformum.

14) Eyðing skógar m.t.t. laga um skóga og skógrækt nr. 33/2019.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulags- og umhverfinsnefnd bendir á að vöxtur trjágróðurs á svæðinu hefur ekki náð sér á strik að sama skapi og ofar í hlíðinni og því telji hún gróðurinn ekki hafa mikið varðveislugildi. Ennfremur kemur fram í deiliskipulagstillögu að byggðin verði aðlöguð að þeim trjágróðri sem þó er til staðar á svæðinu. Skipulags- og umhverfisnefnd telur því að varanleg eyðing skógarins á skipulagssvæðinu (6 ha) teljist forsvaranleg m.t.t. 19. gr. laga um skóga og skógrækt nr. 33/2019 til að mæta húsnæðisþörf í sveitarfélaginu.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulagsfulltrúa verði falið að sjá til þess að skipulagstillögurnar verði uppfærðar í samræmi við ofangreint.

2. Lónsbakkahverfi, aðal- og deiliskipulagsbreyting (2312004)
Kynningu aðal- og deiliskipulagstillögu á vinnslustigi fyrir Lónsbakkahverfi lauk 20. mars sl. og bárust 11 erindi. Skipulags- og umhverfisnefnd fjallaði um innkomin erindi og leggur til við sveitarstjórn að brugðist verði við fram komnum athugasemdum á eftirfarandi hátt.

Aths. 1) Bílastæði á lóðum L3 og L4.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulags- og umhverfinsnefnd leggur til við sveitarstjórn að bílastæði verði skilgreind á lóðunum L3 og L4.

Aths. 2) Fjölbýlishús á lóð L3.
Skipulags- og umhverfisnefnd telur ekki heppilegt að gera ráð fyrir fjölbýlishúsi á lóðinni L3.

Aths. 3) Nálægð íbúðarlóða við sláturhús.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulags- og umhverfisnefnd bendir að fjarlægð við fjölbýlishús sé sambærileg við aðrar lóðir sem fyrir eru í þéttbýlinu og telur ekki ástæðu til að breyta skipulagstillögunni vegna nálægðar við sláturhús.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að aðkomuleiðir að nýjum lóðum við Lónsveg verði endurskoðaðar með hliðsjón af innkomnum athugasemdum sem og númerum lóðanna.

Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að skipulagsfulltrúa verði falið að sjá til þess að skipulagstillögurnar verði uppfærðar með hliðsjón af ofangreindum athugasemdum og að svo breyttum skipulagstillögum verði vísað í auglýsingu skv. 1. mgr. 31. og 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

3. Landsnet umsókn um framkvæmdaleyfi v. Dalvíkurlínu 2 (2401004)
Fjallað um umsókn frá Landsneti hf. um framkvæmdaleyfi vegna lagningar Dalvíkurlínu 2, ásamt fylgigögnum. Nefndarfólk hefur kynnt sér gögn málsins, þar með talið breytingu á aðalskipulagi. Framhald umræðu frá 23. janúar 2024. Framkvæmdin er tilkynningarskyld samkvæmt lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana, en er ekki háð mati samkvæmt áliti Skipulagsstofnunar. Nefndin hefur meðal annars kynnt sér tilkynningu og önnur gögn sem framkvæmdaaðili lagði fram til Skipulagsstofnunar og ítarlegt álit stofnunarinnar á framkvæmdatilkynningu og fellst nefndin á sjónarmið sem þar koma fram. Fullt samræmi er milli lýsingar á framkvæmd og umræddum gögnum sem framkvæmdaraðili lagði fram til stofununarinnar.
Breytt aðalskipulag vegna Dalvíkurlínu 2 hefur verið sent til auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda og mun öðlast gildi með birtingu auglýsingarinnar. Skipulagsstofnun staðfesti breytinguna þann 20. mars 2024. Fyrir liggur að Landsnet hf. hefur náð samkomulagi við mikinn meirihluta landeigenda á lagnaleiðinni en þó ekki alla. Nefndin hefur gengið úr skugga um að fyrirhuguð framkvæmd og lýsing hennar er í samræmi við nýsamþykkt aðalskipulag og fellur vel að staðháttum, m.a. með því að línan verður lögð í jörð og hefur því ekki önnur áhrif á umhverfið svo sem ásýnd eða landnýtingu utan strengstæðis og við framkvæmdina verður tekið tillit til annara lagna sem ligga í eða við lagnaleið Dalvíkurlínu 2. Með hliðsjón af viðmiðum sem fram koma í Vatnaáætlun Íslands 2022-2027 telur skipulags- og umhverfisnefnd einsýnt að ástandi vatnshlots Hörgár muni ekki hraka við framkvæmdina sem um ræðir. Einnig telur nefndin einsýnt að ráðgerð þverun veiðivatna innan sveitarfélagsins hafi ekki áhrif á verndarhagsmuni sem taldir eru upp í 33. gr. laga um lax- og silungsveiði og teljist framkvæmdin því ekki háð leyfi Fiskistofu innan sveitarfélagsmarka Hörgársveitar.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við sveitarstjórn að fallist verði á umsókn Landsnets hf. um framkvæmdaleyfi, þó með því skilyrði að framkvæmdaleyfi verði í upphafi aðeins gefið út vegna jarða þar sem liggur fyrir samkomulag milli Landsnets og landeigenda eða Landsnet hefur öðlast umráð yfir framkvæmdasvæði, enda er framkvæmdin framkvæmdaleyfisskyld, sbr. 5. gr. reglugerðar 772/2012 um framkvæmdaleyfi.
Venjuleg skilyrði verði að öðru leyti í framkvæmdaleyfi, svo sem um fyrirkomulag framkvæmda, hún verði í samræmi við umsókn framkvæmdaaðila, samþykkt skipulag, umsögn Skipulagsstofnunar og að gættum almennum skilyrðum.
Berist staðfesting frá Landsneti um að samkomulag hafi náðst við landeigendur eða félagið hafi öðlast heimild til umráðatöku framkvæmdasvæðis til að ráðast í framkvæmdina í samræmi við umsókn um framkvæmdaleyfi og skipulag, skuli skipulags- og byggingarfulltrúi gefa út af hálfu sveitarfélagsins viðauka við útgefið framkvæmdaleyfi, þar sem fram komi að það gildi einnig vegna þeirra jarða eða framkvæmdasvæða sem það á við hverju sinni.
Bjarki Brynjólfsson og sveitarstjóri véku af fundi við afgreiðslu þessa liðar.

4. Skútaberg, umsókn um framkvæmdaleyfi (2403001)
Skútaberg ehf. sækir um framkvæmdaleyfi fyrir ýmsum framkvæmdum samkvæmt staðfestu deiliskipulagi og fylgja erindinu samþykki frá Norðurorku og Rarik vegna fyrirhugaðra áforma.
Hönnunargögn sem skipulags- og byggingarfulltrúi kallaði eftir frá umsækjanda hafa ekki borist og því er afgreiðslu erindisins frestað.

5. Skútar/Moldhaugnaháls – beiðni um breytingu á deiliskipulagi (2403019)
Skútaberg ehf. sækir um heimild sveitarstjórnar til breytingar á deiliskipulagi Skúta þar sem byggingarreitur nr. 3 yrði stækkaður og byggingarmagn aukið lítillega. Meðfylgjandi er afstöðumynd unnin af H.S.Á teiknistofu dags. 27.09.2023 sem sýnir stækkun byggingarreits.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt. Skipulags- og umhverfisnefnd telur að framkvæmdin varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda sjálfs og leggur því til við sveitarstjórn að fallið verði frá grenndarkynningu sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

6. B. Jensen Lóni, byggingarreitur fyrir verslun (2403021)

B. Jensen Lóni, óskar eftir að fá skilgreindan byggingarreit undir verslun samanber uppdrátt sem fylgir með erindinu. Í erindinu felst að gerð verði óveruleg breyting á deiliskipulagi svæðisins.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að erindið verði samþykkt. Skipulags- og umhverfisnefnd telur að framkvæmdin varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda sjálfs og leggur því til við sveitarstjórn að fallið verði frá grenndarkynningu sbr. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

7. Hvammsvegur 3 Hjalteyri, umsókn um frístundahúsalóð (2403022)
Kolbrún Sara Larsen og Hallgrímur Jónsson óska eftir að fá lóðinni Hvammsvegi 3 á Hjalteyri úthlutað.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að Kolbrúnu Söru Larsen kt. 100780-5349 og Hallgrími Jónssyni kt. 090782-4019 verði úthlutuð frístundahúsalóðin Hvammsvegur 3 á Hjalteyri, sem er leigulóð.

Fleira gerðist ekki, fundi slitið kl. 12:25