Skipulags- og umhverfisnefnd fundur nr. 83

21.06.2022 08:30

Skipulags- og umhverfisnefnd Hörgársveitar

83. fundur

Fundargerð 

Þriðjudaginn 21. júní 2022 kl. 08:30 kom skipulags- og umhverfisnefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins.

Fundarmenn: Jón Þór Benediktsson formaður, Agnar Þór Magnússon varaformaður, Sunna María Jónasdóttir, Ásrún Árnadóttir og Bjarki Brynjólfsson í skipulags- og umhverfisnefnd, Vigfús Björnsson skipulags- og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri.

Fundargerð ritaði Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri. 

1. Blöndulína 3

Rætt um stöðu mála.

2. Dalvíkurlína 2

Kynning á stöðu mála.

Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að sveitarfélagið hafi samvinnu við Landsnet og Vegagerðina um kynningu og viðræður við landeigendur.

3. Moldhaugar/Skútar, aðal- og deiliskipulag

Lagt fram bréf frá Skipulagsstofnun dags. 9.6.2022.  Umræður um mengunarvarnir á svæðinu. Ákveðið að funda með forsvarsmönnum Skútabergs um málið.

4. Reynihlíð 20-26, breyting á deiliskipulagi

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi lóðanna 20-26 við Reynihlíð þar sem gert er ráð fyrir að heimilt verði að byggja fjögurra íbúða fjölbýlishús á tveimur hæðum í stað þriggja íbúða raðhúsa á tveimur hæðum líkt og gert er ráð fyrir í gildandi deiliskipulagi.

Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að fram fari breyting á deiliskipulagi Lónsbakkahverfis á þá leið að á lóðunum Reynihlíð 20, 22, 24 og 26 verði heimilt að byggja fjögurra íbúða fjölbýlishús á tveimur hæðum, í stað þriggja íbúða raðhúsa á tveimur hæðum sem gildandi deiliskipulag gerir ráð fyrir. Nefndin telur að breytingin teljist óveruleg með hliðsjón af viðmiðum í gr. 5.8.2. í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 og leggur því til við sveitarstjórn að skipulagsbreytingunni verði vísað í grenndarkynningu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

5. Skriða, malarnám

Lögð fram að nýju umsókn frá eigendum Skriðu þar sem óskað er eftir breytingu á aðalskipulagi Hörgársveitar á þá leið að heimilt verði að taka allt að 150.000 rúmmetra af möl úr farvegi og áreyrum Syðri-Tunguár í landi Skriðu. Svæðið sem tilgreint er í erindinu skarast að nokkru leyti við efnistökusvæði E8 í Aðalskipulagi Hörgársveitar 2012-2024, en á því svæði er gert ráð fyrir að taka alls 75.000 rúmmetra úr „malarkeilum og árfarvegum“ Ytri- og Syðri-Tunguá.

Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að erindinu verði hafnað, enda gerir erindið ráð fyrir að efni sé tekið á svæði sem ekki er skilgreint sem efnistökusvæði í gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins, og samræmist að því leyti ekki markmiðum aðalskipulagsins um að efnistökusvæðum verði ekki fjölgað.

Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti jafnframt að leggja til við sveitarstjórn að fundað verði með umsækjendum og farið yfir þá möguleika sem eru í stöðunni með tilliti til heimilda í gildandi aðalskipulagi og umhverfismati vegna efnistöku úr Hörgá.

 6. Glæsibær 4, umsókn um breytta skráiningu húsnæðis

Lögð fram umsókn frá eigendum að Glæsibæ 4 þar sem óskað er eftir breytingu á skráningu húsnæðis á lóðinni Glæsibæ 4, þar sem eigandi vill breyta eldri útihúsum í íbúðarhús og verkstæði.

Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að erindinu verði vísað í grenndarkynningu skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Heimilt verði að stytta tímabil grenndarkynningar ef allir hagsmunaaðilar lýsa því yfir að ekki sé gerð athugasemd við áformin. Ef ekki berast athugasemdir á grenndarkynningartímabilinu telst erindið samþykkt.

7. Fyrirspurn vegna stöðuleyfis utan lóðar við Reynihlíð

Lögð fram greinargerð frá skipulagshöfundi deiliskipulags Reynihlíðar.

Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn  að þar sem ekki er búinn endanlegur frágangur í og við lækinn er ekki hægt að verða við erindinu að svo stöddu.

8. Lækjarvellir 9, umsókn um breytingu á byggingareit

Lögð fram umsókn frá eigendum lóðarinnar Lækjaravellir 9 þar sem óskað er eftir breytingu byggingareit.

Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að fram fari breyting á deiliskipulagi Lækjarvalla á þá leið að byggingarreitur á lóðinni Lækjarvellir 9 verði stækkaður til suðurs og vesturs í samræmi við erindið.  Nefndin telur að breytingin teljist óveruleg með hliðsjón af viðmiðum í gr. 5.8.2. í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 og leggur því til við sveitarstjórn að skipulagsbreytingunni verði vísað í grenndarkynningu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

9. Njóla/illgresiseyðing

Fyrirspurn um hvort Hörgársveit hafi áform um að styðja við njóla og illgresiseyðingu í sveitarfélaginu.

Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að kannað verði með samvinnu sveitarfélagsins við íbúa til að sporna við útbreiðslu njóla og öðru illgresi í sveitarfélaginu.

10. Grenndarkynning á breytingum á Þelamerkurskóla

Byggingarleyfi vegna viðbyggingar við Þelamerkurskóla.

Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að byggingarleyfi vegna stækkunar Þelamerkurskóla verði vísað í grenndarkynningu á grundvelli 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

11. Litli-Dunhagi, eldri malarnáma

Eigandi Litla-Dunhaga hefur haft samband við sveitarfélagið og tilkynnt um áform sín um að ljúka efnistöku sem veitt var framkvæmdaleyfi fyrir með samþykkt sveitarstjórnar þann 30. nóvember 2009. Framkvæmdaleyfið nær til hryggs sem var í túni ofan Hörgárdalsvegar og var hryggurinn fjarlægður að mestu leyti í kjölfar samþykktar sveitarstjórnar. Af framkvæmdinni stendur eftir að fjarlægja afganginn af hryggnum og jafna svæðið að því búnu undir tún.

Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að gera ekki athugasemd við málið.

12. Lækjarvellir, hæð götu

Fram hafa komið fyrirspurnir varðandi hæð götu í Lækjarvöllum með tilliti til hæðakvóta húsa.  Nefndin áréttar að tekið verði tillit til þessa við endanlega legu götunnar áður en hún verður malbikuð.

13. Brekkuhús 1 a, umsókn um byggingareit fyrir viðbyggingu

Lögð fram umsókn um byggingareit fyrir viðbygginu.  Umsókninni fylgir uppdráttur.

Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að leggja til við sveitarstjórn að fram fari breyting á deiliskipulagi Hjalteyrar á þá leið að byggingarreitur á lóðinni Brekkuhús 1 a, verði stækkaður í samræmi við innsendan uppdrátt.  Nefndin telur að breytingin teljist óveruleg með hliðsjón af viðmiðum í gr. 5.8.2. í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 og leggur því til við sveitarstjórn að skipulagsbreytingunni verði vísað í grenndarkynningu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

14. Námskeið fyrir nefndarmenn í skipulagsnefndum

Nefndin telur jákvætt að nefndarmenn sæki slíkt námskeið.

Fleira gerðist ekki, fundi slitið kl. 12:10