Fjallskilanefnd, fundur nr. 9

23.08.2012 20:00


Fimmtudaginn 23. ágúst 2012 kl. 20:00 kom fjallskilanefnd Hörgársveitar saman til fundar á Staðarbakka. Mættir eru til fundarins: Aðalsteinn H Hreinsson, Jósavin Gunnarsson, Stefán L Karlsson, Helgi Steinsson og Guðmundur Skúlason.

 

Eftirfarandi bókað á fundinum:

 

1.    Tímasetning gangna: Í Arnarnesdeild og neðsta hluta Skriðudeildar fram að Syðri-Tunguá verða 1. göngur laugardaginn 8. september og aðrar göngur viku síðar, nema á gangnasvæðinu Dagverðartungudalir og Skriðudalur þar verður hálfur mánuður á milli gangna. Á öðrum gangnasvæðum Skriðudeildar, Glæsibæjardeild og Öxnadalsdeild verða 1. göngur víðast hvar frá miðvikudeginum 12. til sunnudagsins 16. september og aðrar göngur viku síðar.

2.    Borist hafa beiðnir frá eigendum sauðfjár á jörðunum: Árhvammi og Bitru um að vera undanþegnir fjallskilum í haust, þar sem þeir hafi haft allt sitt sauðfé í fjárheldum girðingum sumarlangt. Fjallskilanefnd samþykkir beiðnirnar. Alls eru þetta 70 kindur, sem ekki koma til álagningar fjallskila á þessum tveimur jörðum.

3.    Gengið hefur verið frá samningi milli Hörgársveitar og Akrahrepps um aðkomu Akrahrepps að gangnaskilum í Hörgársveit fyrir fé sem kemur að vestan.

4.    Álagning fjallskila í sveitarfélaginu. Heildarfjöldi gangnadagsverka í Hörgársveit er 468. Alls eru 7.211 kindur í sveitarfélaginu samkvæmt síðustu forðagæsluskýrslu, sem er fjölgun um 123 kindur frá árinu áður. Fjárfjöldi sem dagsverkum er jafnað niður á í sveitarfélaginu eru 7.141 kind. 70 kindur koma ekki til útreiknings fjallskila sem voru innan girðingar, samanber 2. lið fundargerðarinnar Að jafnaði eru flestar kindur í dagsverki í Glæsibæjardeild 26,0. Í Öxnadalsdeild eru þær 19,6. Í Arnarnesdeild eru 16,7 í dagsverkinu. Fæstar kindur eru í dagsverki í Skriðudeild 14,2 kind. Á einstökum gangnasvæðum eru flestar kindur í dagsverki í Laugalandsheiði og Hlíðarfjalli 29,7 en fæstar á Myrkárdal 12,5 kindur. Hörgásveit mun kosta 39 dagsverk og Akrahreppur 21 á eyðilendum þar sem enginn sleppir. Fjallskilaboð verða send sauðfjáreigendum og þau munu líka verða aðgengileg á heimasíðu Hörgársveitar.

5.    Rætt var um flutning úrtínings á komandi hausti. Ákveðið að hafa hann með svipuðu sniði og verið hefur síðustu haust, það er að dregið skuli upp á hverri auka- og heimarétt í sveitarfélaginu og ber réttarstjórum að tilkynna um aðkomufé til eiganda innan Hörgársveitar, sem ber þá að sækja sitt fé. Sé um utansveitarfé að ræða skal tilkynna það til eiganda eða fjallskilastjóra viðkomandi fjallskiladeildar í Hörgársveit.

 

Fleira ekki bókað og fundi slitið kl. 22:02.