Fjallskilanefnd fundur nr. 35

01.08.2023 20:00

Þriðjudaginn 1. ágúst 2023 kl. 20:00 kom fjallskilanefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.

Fundarmenn: Arnar Ingi Tryggvason formaður, Jónas Þór Jónasson varaformaður, Agnar Þór Magnússon, Davíð Jónsson og Egill Már Þórsson nefndarmenn og Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Álagning gangnadagsverka

Lögð fram drög að álagningu fjallskila haustið 2023. Nefndin fór yfir drögin og gerði á þeim breytingar. Heildarfjöldi gangnadagsverka er 382. Samkvæmt síðustu forðagæsluskýrslu er alls um að ræða 6.655 kindur, sem er fækkun um 247 frá fyrra ári. Meðaltalsfjöldi kinda í dagsverki er því 17,4.

Fjallskilanefnd samþykkti framlögð drög að álagningu fjallskila haustið 2023, með þeim breytingum sem gerðar voru á þeim á fundinum.

2. Tímasetning gangna og rétta haustið 2023, frávik

Rætt um tímasetningu gangna. Tímasetning gangna var samþykkt á fundi nefndarinnar þann 21. mars 2023. Frávik frá þeim dagsetningum koma fram á gangnaseðlum.

3. Fundur með Skagfirðingum

Fulltrúar Hörgársveitar og Skagafjarðar hittust á fundi í Þelamerkurskóla þann 24. júlí 2023 til að fara yfir sameiginleg mál varðandi fjallskil og gangnamál og fleira. Ákveðið var á þeim fundi hvernig staðið yrði að sameiginlegri smölun haustið 2023.

4. Viðhald fjárrétta

Rætt um stöðu mála varðandi ásigkomulag og viðhald fjárrétta.

5. Ágangur búfjár

Umræður um ágang búfjár, lausagöngu ofl.

 

Fleira gerðist ekki – fundi slitið kl. 22:30