Fjallskilanefnd, fundur nr. 27

01.09.2020 20:00

Fjallskilanefnd Hörgársveitar

27. fundur

Fundargerð

Þriðjudaginn 1. september 2020 kl. 20:00 kom fjallskilanefnd Hörgársveitar saman til fundar í húsnæði félagsmiðstöðvar í heimavist Þelamerkurskóla.

Fundarmenn: Jónas Þór Jónasson formaður, Jósavin Gunnarsson, Sigríður Kristín Sverrisdóttir, Davíð Jónsson, og Arnar Ingi Tryggvason nefndarmenn og Snorri Finnlaugsson, sveitarstjóri, sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Skipulag gangna og rétta 2020 í Hörgársveit í ljósi covid-19

Lögð frm samþykkt sveitarstjórnar frá 27.8. s.l. þar sem fjallskilanefnd er falið fullnaðar vald til að útfæra reglur og framkvæmd sóttvarna í göngum og réttum í samræmi við útgefnar   leiðbeiningar   vegna  gangna og rétta vegna COVID-19 – hættustig almannavarna.  Uppfærðar leiðbeiningar frá 31.8.2020 lagðar fram og ræddar.

Fjallskilanefnd samþykkti reglur, tilmæli og vinnulag sem kynnt verður.

Fleira gerðist ekki – fundi slitið kl.  21:55