Félagsmála- og jafnréttisnefnd, fundur nr. 17

19.11.2020 16:00

Félagsmála- og jafnréttisnefnd Hörgársveitar

17. fundur

Fundargerð

Fimmtudaginn 19. nóvember 2020 kl. 16:00 kom félagsmála- og jafnréttisnefnd Hörgársveitar saman til fundar á skrifstofu sveitarfélagsins í Þelamerkurskóla.

Fundarmenn: Andrea R. Keel formaður, Kristbjörg María Bjarnadóttir og Ásta Júlía Aðalsteinsdóttir (vm í fjarfundi) í félagsmála- og jafnréttisnefnd og Snorri Finnlaugsson sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

1. Fjárhagsáætlun 2021

Lögð fram og rædd tillaga að fjárhagsáætlun 2021 fyrir málaflokk 02 félagsþjónusta.

Félags- og jafnréttisnefnd samþykkti áætlunina fyrir sitt leyti.

2. Samningur um öldrunarþjónustu

Rætt var um breytingar sem kunni að verða á samningi við Akureyrarbæ um öldrunarþjónustu með breytingum á rekstraraðilum Öldrunarheimila Akureyrar.

Fleira gerðist ekki – fundi slitið kl. 16:45